Útgáfa

nl0804

Brúðarblaðið og allt hitt

27.3.2008

Nýtt Líf er komið út sneisafullt af skemmtilegum greinum, fróðlegum viðtölum, menningu, tísku og fegurð. Bættu bólfélagan og ekki týna hamingju fjölskyldunnar í leit að peningum, vertu með tískuna á hreinu og lestu allt um hamingjusama parið, þau Helga Seljan og Katrínu Rut.

nl0804bGlæsilegt Brúðarblað fylgir með að þessu sinni þar sem farið yfir allt sem þú þarft að vita fyrir brúðkaupið þitt!

Tákn frelsis og vonar / Léttir litir létta á sálinni / Gulur, rauður, grænn og blár / Hálsmen / Nýnæmi / Beðið eftir manninum með hattinn / Innblástur / Nostalgía / Hvernig býr ritstjóri Húsa og híbýla? / Lúxusmatur á hálftíma / Frosnir kokteilar / Vorförðunin / Litasprengja / 10 atriði sem karlar vissu ekki um konur.

Lárus ljóti gerbreytir lífi sínu og útliti í Þjóðleikhúsinu og Gabríela Friðriksdóttir býr til heim á milli svefns og vöku í Listasafni Íslands.

Ertu húkt á Dexter? Getur þú ekki beðið eftir næsta þætti? Lestu bækurnar. Nú eða Bréf til Láru, sem er bók mánaðarins. Þórarinn Þórarinsson skrifar um góðar bækur.

Hún er mjúk og munúðarleg með slettu af glimmeri og skringilegheitum. Þannig lýsir Elín Hrund Þorgeirsdóttir plötunni Seventh Tree með Goldfrapp er hún skrifar um góða tónlist.

Rebekka Kolbeins skilur sátt við Evróvisjón, ánægð með árangurinn. Hún hlakkar til að túra með Merzedes Club næsta sumar. Það á vel við hana að vera í sviðsljósinu. En núna er hún að leita sér að vinnu. 

Ég ætla að kvænast þessarri stelpu
Þrjú ár eru liðin síðan Helgi Seljan og Katrín Rut Bessadóttir byrjuðu saman á Ölveri. Þau eiga það sameiginlegt að taka hvorki sig sjálf né lífið of alvarlega en náðu hvort öðru niður á jörðina. Þegar Katrín varð ólétt neyddust þau til að verða fullorðin, en meðgangan var bæði löng og ströng þar sem þau gengu í gegnum tvö áföll. Og var gefið til kynna að ófætt barn þeirra væri látið.  

Þurfa stjórnmálakonur að vera sætar?
Yulia Tymoshenko talaði fyrir daufum eyrum um hugðarefni sín þar til hún breytti útliti sínu. Þá komst hún í heimsfréttirnar og varð forsætisráðherra Úkraínu. Enda verður fólki gjarnan tíðrætt um útlit kvenna í stjórnmálum. Hárgreiðslur kvenna í valdamiklum stöðum eru jafnvel forsíðufréttir tímarita.

Hnetubrjóturinn Hillary
Ísdrottning, dræsa, norn, tík, heimsk tík, femínisti, drusla. Fyrsta konan sem gæti orðið forseti Bandaríkjanna og viðbrögðin við framboði hennar.

Mannkynssagan fyrir byrjendur: Fyrsti hluti.
Sagan er endalaus hringrás. Bubbi hefur alltaf rifið kjaft og íslensk blöð fjalla alltaf um sama fólkið. Þórarinn Þórarinsson fletti í gegnum dag- og vikublöð frá árunum 1990 til 1994.

Hlutverk eru heftandi
Ólafur De Fleur vill ekki festast í ákveðnu hlutverki eða áhugamáli. Hann vill gera það sem honum sýnist þegar honum sýnist. Eitt af því var að gera heimildarmyndina The Amazing Truth about Queen Raquela, sem segir sögu stelpustráks frá Filippseyjum. Stelpustrákarnir eiga það sameiginlegt að vera fastir í kvenhlutverkinu og ýkja staðalmyndina af konum stórlega.

Peningar
Fjölskyldan er efnahagsleg eining sem sameinast í að eyða því sem aflað er. Hamingja fjölskyldunnar fer eftir því hvernig hún eyðir þeim peningum sem hún hefur til umráða.

Bættu bólfélagann
Ef bólfélaginn kann ekki að kyssa getur þú kannski kennt honum það án þess að hann verði þess var. Sum vandamál er þó erfiðara að eiga við.

Játningar piparsveinsins
„Ég er ekki holdsveikur, ég er einhleypur,“ segir Guðmundur Jóhannesson. En þegar honum er boðið í matarboð er hann þar sem skemmtiatriði, með sögur af djamminu og kvennafarinu. Þá fær hann lélegasta sætið. Ef honum er yfirhöfuð boðið í matarboð.

Stjörnuspá
Vatnsberinn á von á góðum fréttum og rómantík og Hrúturinn laðar að sér fólk  með persónutöfrunum á meðan Steingeitin sinnir heimilinu og garðinum með fram vinnunni.

 

 

 

 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.