Útgáfa
Vorið er komið
Hús og híbýli taka púlsinn á vorverkunum. Í blaðinu eru frábær ráð fyrir tiltekt og skipulag heimilisins, allt um vísindi matjurgagarðsins og skotheldar leiðbeiningar um hvernig á að gera garðinn fallegan fyrir sumarið.
Við kíktum einnig í heimsókn til Sifjar Jakobsdóttur skartgripahönnuðar sem býr í flottu verðlaunahúsi í Kaupmannahöfn og hönnuðurinn Chuck Mack er tekinn tali. Hann býr á Íslandi og fékk um daginn að vita að ein virtustu hönnunarverðlaun heimsins, Red dot, völdu Borð 29 eftir hann til verðlauna.
Red dot–verðlaunin til Íslands
Hinn íslenskættaði Chuck Mack hlaut nýlega hin virtu Red dot–verðlaun fyrir hönnun sína á borðinu „Table 29“. Hann hefur búið á Íslandi í fimm ár og sagði blaðamanni frá reynslu sinni sem hönnuður á Íslandi.
Skartgripahönnuður í Köben
Hún er að slá í gegn skvísan sem við heimsóttum í Köben á dögunum. Hún heitir Sif Jakobsdóttir, er gullsmiður og skartgripahönnuður og býr í eðalflottu fjölbýlishúsi sem hefur fengið hönnunarverðlaun.
Vorverkin
Nú þegar vorið er á næsta leiti er kominn tími til að huga að garðinum og taka til í skápunum. Hér eru gagnlega ráð þegar búa skal til matjurtagarð, klippa trén og koma skipulagi á í skápunum.
Þar ræður funkisstíllinn ríkjum
Hjónin Hannes Frímann Sigurðsson og Svandís Sturludóttir ákváðu að byggja hús þegar þau fluttu til Reykjavíkur fyrir nokkrum árum. Funkisstíllinn heillaði þau og fengu þau arkitekta hjá teiknistofunni Úti og inni til að hanna húsið sem er í Grafarholtinu.
Hið hversdagslega verður spennandi
Ditte Hammerstrøm er um þessar mundir einn heitasti hönnuður Norðurlanda. Hönnun hennar er fersk og kemur sífellt á óvart en hún hefur vakið mikla athygli um heim allan.
Lífsgleði litanna
Áræðin hönnun og snjallar sjónrænar brellur gera hús að heimili í Richmond á Englandi. Ekki leið á löngu þar til húsfreyjan sneri baki við frama í markaðsráðgjöf og helgaði sig innanhússhönnun.
Hitt og þetta – Spurt og svarað – Flott og fundið – Okkur langar í ? – 10 hlutir – Skúrinn – Nýjar búðir – Áskrifendatilboð – Hönnunarsagan – Uppáhaldshúsið

