Útgáfa

ge0805

Fiskur og kjúklingur

10.4.2008

Gestgjafinn er að venju sneisafullur af girnilegum uppskriftum og að þessu sinni má finna yfir 50 uppskriftir í blaðinu. Þetta 5. tölublað ársins er tileinkað fiski og kjúklingi.

Þegar við hugsum um samsetningu á „léttum“ mat er fiskur og kjúklingur ofarlega á blaði. Rauða kjötið er tormeltara og oft talað um þungar steikur en ekki léttar. Með það í huga lögðumst við undir feld og útbjuggum nokkrar frábærar uppskriftir.

Ætiþistlar, Sushi, plokkfiskur í Þrep fyrir þrep, Gómsætt án sykurs og Furðulegir furðufiskar. Allt um ætiþistil og hvernig best er að elda hann. Grænmetisrétturinn er að þessu sinni fylltar paprikur og Sunnudagskakan möndlueplabaka. Kalt borð úr sjávardjúpunum freistar lesendum og Sirrý lagaði fljótlega fisk- og kjúklingarétti.

Einnig fengum við nokkra nafntogaða sælkera, sem líka reka veitingastaði, til að gefa okkur uppskrift að æðislegum fiskréttum og skoðum svo kjúklingarétti frá ýmsum löndum. Að lokum sýnum við hvernig á að laga fiskisoð frá grunni og gefum jafnframt uppskriftir að nokkrum mismunandi fiskisúpum.

Spurt & svarað - Í uppáhaldi – Torgið – Búðaráp – Allrahanda - Eitt vín – einn réttur - Molar/bix - Vínsíðurnar - Kokkurinn og Kjartan – happdrætti



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.