Útgáfa
BASKAVÍG Á VESTFJÖRÐUM
BASKAVÍG Á VESTFJÖRÐUM
Haustið 1615 fórust þrjú basknesk hvalveiðiskip á Vestfjörðum. Tugir Baska komust af og sáu fram á að hafa vetursetu á Íslandi. En Íslendingar, með Ara sýslumann í Ögri fremstan í flokki, brugðust hart við og réðust að Böskunum og drápu alla þá sem þeir komu höndum yfir. Sagan öll segir frá þessum svarta bletti Íslandssögunnar.
MAFÍAN Í BANDARÍKJUNUM
Ítölskættuð glæpasamtök komu rækilega undir sig fótunum er áfengisbann var við lýði í Bandaríkjunum. Í marga áratugi á eftir voru mafíósarnir víðfrægir í samfélaginu og margir litu á þá sem hetjur. En þeir voru samviskulausir glæpamenn.
GARBO DROTTNING
Árið 1933 sendi Hollywood frá sér kvikmynd um hina sænsku Kristínu drottningu. Hin sænska Greta Garbo lék aðalhlutverkið. Ævi þeirra tveggja var ekki ósvipuð.
ORRUSTAN VIÐ JÓTLAND
Árið 1916 mættust orrustuflotar Breta og Þjóðverja í gríðarlegum slag úti fyrir ströndum Jótlands. Þetta var mesta sjóorrusta sögunnar og 9.000 manns létu lífið.
TÍMI NORNARINNAR
Galdrafárið í Evrópu þykir einhver myrkasti og furðulegasti tími sögunnar. Fjöldi fólks, ekki síst konur, var tekinn af lífi fyrir að hafa selt Satan sál sína.
HANNES OG RAGNHEIÐUR
Hannes Hafstein ráðherra elskaði konu sína svo ofurheitt að þegar hún andaðist skyndilega syrgði hann hana svo mjög að hann varð aldrei samur maður eftir.
Grafið úr gleymsku - Þúsund orð - Það gerðist í júní - Spurningar og svör - Fornar ástir - Slagur stáltröllanna – Hjásagan - Fjöldamorð á Vestfjörðum - Mafían í Bandaríkjunum - Galdrafárið í Evrópu – Kvikmyndasaga - Krakkasagan - Í stuttu máli – Bækur og blöð - Sögugetraunin

