Útgáfa

nl0805

Tíska - Viðtöl - Greinar og Allt hitt

16.4.2008

Nýtt Líf er stútfullt af áhugaverðu efni og má þar nefna viðtal við helsta fatahönnuð landsins, Hörpu Einarsdóttur, þar sem hún fjallar um rótlaus uppvaxtarár, geðhvarfasýki og hvernig það er að vera ung mamma. Einnig má finna skemmtilegar greinar um það helsta í New York, og vorlitina. Fullt af öðru skemmtilegu efni um karla, tilgang mannkynsins, tískuna og margt fleira.

Harpa og stjörnurnar:  Það er eitthvað sérstakt við Hörpu Einarsdóttur sem er komin í fremstu röð íslenskra fatahönnuða með merki sínu Starkiller og teiknar hún Sci-Fi-búninga fyrir tölvuleikinn Eve Online. Hún átti frekar rótlaus uppvaxtarár og flakkaði um heiminn á flótta undan sjálfri sér. Hún eignaðist ung tvö börn sem hún hefur alið upp að mestu óstudd og segir það hafa gefið sér jarðtengingu og tilgang. Harpa hefur líka lært að lifa með geðhvarfasýki og að snúa henni sér í hag í listsköpun sinni.
Olíubarón 21. aldarinnar er lýtalæknir en J.R. Ewing er einn eftirminnilegasti skúrkur sjónvarpssögunnar.  Nú hefur  Dr. Christian Troy, siðblindur og bráðmyndarlegur lýtalæknir, tekið við í þáttunum Nip/Tuck.
Sætir strákar: Eru karlar hinar nýju konur?  
Í stað þess að jafnréttið hafi fært okkur þjóðfélag þar sem allir eru metnir að verðleikum, hefur það fært okkur þjóðfélag þar sem allir eru dæmdir eftir útlitinu.
Skóli lífsins: 
Guðni Gunnarsson, 54 ára lífsráðgjafi, hefur lært að tilgangur mannkyns er að uppgötva frjálsan vilja, að vakna til vitundar og taka ábyrgð.  
Lifir eftir eigin hjarta:  Urður Hákonardóttir sker sig óneitanlega úr fjöldanum í hlébarðakápunni sinni, afrískum, skræpóttum kjól, túrkisbláum sokkabuxum, neonbleikum hermannaskóm og með græna línu á augnlokunum. Þessi litríka, unga kona stendur á tímamótum. Hún sagði sig úr hljómsveitinni GusGus fyrir ekki svo löngu og stefnir að því að hefja sólóferil.
Fermingarstúlkur og fegurðin:  Útlitsdýrkun samfélagsins hefur mikil áhrif á ungt fólk á Íslandi, líkt og erlendis. Þetta speglast vel í undirbúningnum fyrir ferminguna. Áherslurnar hafa breyst svo um munar.
Tískuvikan í New York:  Tískuvikan í New York. Að vera mitt í hringiðunni, fræga fólkið, heitustu staðirnir og tískusýningarnar.
New York: Hvar áttu að borða, versla, láta dekra við þig og hvað áttu að skoða? Leiðbeiningar að ljúfa lífinu í þessari borg þar sem allt er hægt.
Íslenskir fatahönnuðir:  Brot af því besta í íslenskri fatahönnun í dag. Margir af okkar fremstu og ferskustu hönnuðum og aðrir ungir og upprennandi hönnuðir sýna hvað í þeim býr.
Vorlitirnir: 
Gulur, fjólublár, bleikur, brúnn og grænn ... Vorlitirnir 2008.

10 atriði sem konur vissu ekki um karla / Piparsveinninn okkar / Að byrja að deita á ný / Kynlífsdeyfð karla / Peningar / Er streitan að fara með þig? / Stjörnuspá / 101 Reykjavík

Blómarós / Litur sólarinnar / Slaufur /  Leðurjakkar / Sportlegur og smart / Tískudagbók / Nýnæmi



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.