Útgáfa
Gólf og geimfarahjálmur.
50 góð gólfefni og 12 rjúkandi góð gólfráð eru meðal þess efnis sem þú finnur í nýjasta tölublaði af Húsum og Híbýlum. Við sýnum ykkur frá skemmtilegum innlitum, meðal annars í glæsilegan fornbílaskúr, léttflippað hús Lundúnadömu. Einnig kemur stóll Halldórs Laxness við sögu ásamt framsækinni japanskri hönnun.
Vorið kemur fyrr í Fossvoginum
Margrét E. Laxness og fjölskylda búa í fallegu raðhúsi í Fossvoginum. Hún fékk Kristínu Brynju Gunnarsdóttur til að teikna nýtt eldhús í rými sem áður rúmaði eldhús, þvottahús og búr.
Gólfefni
Ertu í gólfefnahugleiðingum? Kannski búinn að vera að hugsa um að setja nýjar fínar flísar á baðið síðan þú fluttir inn? Hér er gólfefnaúrval bæjarins eins og það gerist best.
Listrænt og létt við sjóinn
Með útsýni yfir hafið bláa, við götu sem tilheyrir Seltjarnarnesinu, búa hjónin Hólmfríður Arnardóttir og Barði Kárason en þau heilluðust af húsinu og útsýninu yfir sjóinn þegar þau ákváðu að kaupa fyrir tveimur árum.
Einn framsæknasti hönnuður Japana
Tokujin Yoshioka hefur ávallt leitað nýrra leiða í hönnun sinni en efniviður hans er oftar en ekki mjög óvenjulegur og framandi.
Magnaður skúr á Höfðanum
Við Bíldshöfða 18 er risastór skúr þar sem klúbburinn KRÚSER er til húsa. Í þessum fornbílaklúbbi eru 550 félagsmenn en það er ekki skilyrði að eiga fornbíl til að fá inngöngu í klúbbinn, óbilandi áhugi er aftur á móti æskilegur.
Hitt og þetta
Spurt og svarað
Flott og fundið
Okkur langar í ?
10 hlutir
Nýjar búðir
Áskrifendatilboð
Hönnunarsagan
Uppáhaldshúsið

