Útgáfa
Ferðalög
Hvað á að borða í ferðalaginu? Við fórum á stúfana og skoðuðum veitingahús í Kaupmannahöfn, París, London, New York, Tenerife, Róm, Berlín, Marrakech, ásamt fleiri heillandi viðkomustöðum. Kíktum á matreiðslunámskeið í Frakklandi og á matreiðslukeppni grunnskólanna.
Nú er tími ferðalaga að ganga í garð og margir þegar búnir að ákveða ferð sumarsins. Sumir vilja fara til útlanda en aðrir vilja nota sumarið hér heima og njóta fegurðar náttúrunnar sem skartar sínu fegursta aðeins í stuttan tíma. Síðasta sumar var veður óvenju gott hér á landi en því miður getum við ekki gengið að því vísu sumar eftir sumar. Ef treysta má spádómum gamalreyndra bænda og sjómanna getum við þó gert ráð fyrir álíka sumri núna og síðasta sumar. Það byrjar mjög vel og tilhlökkun er farin að gera vart við sig bæði hjá ungum sem gömlum.
Meðal efnis er þetta:
Árstíðir á markaðnum
Dominique fjallar um tómata, uppruna og afbrigði.
Engisprettan stekkur hátt
Þórhildur Þorleifsdóttir og Arnar Jónsson buðu leikurum í leikritinu Engisprettur heim í serbneskan mat í anda leikritsins.
Korter í kvöldmat
Sirrý lagaði bollur frá ýmsum löndum, m.a. fiskibollur frá Tælandi og Tyrklandi og kjötbollur frá Túnis.
Matarhefðir endurspegla mannlífið
Melissa Kronenthal heldur úti vinsælli matarbloggsíðu sem hún kallar Traveler’s Lunchbox. Hún skrifar einnig fyrir hið virta tímarit Food and Travel. Sólveig Jónsdóttir hitti hana í Edinborg þar sem hún hefur búið undanfarin ár og fékk að vita ýmislegt um bloggið, mataráhugann og ferðalögin.
Bath – rómantíska borgin á Bretlandi
Sirrý heimsótti Bath ekki alls fyrir löngu og heillaðist gjörsamlega.
Cook in France
Hjónin Álfrún Sigurðardóttir og Jón Kristinn Cortez fóru á matreiðslunámskeið í Bombel í Frakklandi u.þ.b. 200 km austur af Bordeaux.
Cornwall
Cornwall er hrífandi viðkomustaður sem heillað getur ferðamenn sem þangað koma algjörlega upp úr skónum.
Eftirminnilegir veitingastaðir erlendis
Við deilum hér með ykkur veitingastöðum sem við höfum heimsótt og eru á einhvern hátt eftirminnilegir í okkar augum.
Gómsætt án sykurs
Hanna er í ferðaham og útbjó mat sem er tilvalinn í ferðalagið.
Reef´n beef
Róbert Scmidt fór til Kaupmannahafnar og borðaði þá á afar sérstökum áströlskum veitingastað.
Matartengdir viðburðir og námskeið erlendis
Kokkur í tísku
Matreiðslukeppni grunnskólanna fór nýlega fram og krýndur var nýr sigurvegari.
Rick Stein
Einn þekktasti matreiðslumeistari Bretlands, Rick Stein, hefur undanfarin ár rekið einn þekktasta sjávarréttaveitingastað Bretlands, The Seafood Restaurant.
Þrep fyrir þrep
Úlli sýnir hvernig á að laga sitt eigið pasta og útbúa ravioli.
Búðaráp
Gerður fann flott dót til að nota við vorhreingerningarnar.

