Útgáfa

ge0807

GRILL - GRILL - GRILL

22.5.2008

Grilltíminn er kominn! Í blaðinu er að finna uppskriftir að nauta-, lamba-, svína- og kjúklingakjöti á grillið fyrir utan fiskiuppskriftir og eftirréttahugmyndir, allt í grillpartýið. Góð tíð undanfarið gefur fyrirheit um gott sumar og ef sú tilfinning rætist er ekki seinna vænna en að rifja upp allt sem við kunnum í grilleldamennsku.

Meðal efnis:

Þó að rigni ...
Guðrún Vaka fékk að taka þátt í grillveislu með hljómsveitinni Bermuda sem nýtur mikilla vinsælda um þessar mundir. Þar var matur og fjör eins og það gerist best.

Nautnakjöt á grillið
Úlfar grillar gómsætar nautasteikur og við látum fylgja með nokkur góð ráð sem vert er að hafa í huga við grillun á nautakjöti.

Klípur af kryddsmjöri og rjóma
Góð tilbreyting frá heitum sósum eru kryddsmjör og hér sýnum við hvernig laga á kryddsmjör og gefum nokkrar mismunandi uppskriftir.

York – riddaraborgin
York er heillandi borg í Bretlandi sem hefur yfir sér mikinn ævintýrablæ. Sirrý segir okkur frá því í máli og myndum.

Jarmandi snilld!
Úlfar grillaði nokkra rétti úr okkar sívinsæla og þjóðlega hráefni, lambakjötinu.

Grísast á grillið
Grísarif, grísakótelettur og grísalund er meðal þess sem Úlfar grillar og gefur uppskriftir að.

Kryddlegir í tilveruna
Kryddlegir mýkja og meyra um leið og þeir gefa matnum það bragð sem við óskum eftir. Hér koma uppskriftir að kryddlögum m.a. fyrir fisk, lamb, kjúkling og villibráð.

Gaggandi gott á grillið
Hver er galdurinn við að grilla kjúkling? Úlfar svarar því og býður upp á nokkrar frábærar kjúklingauppskriftir.

Grill upp á marga fiska
Rétt grillaður fiskur er tilvalinn í grillveislur sumarsins og kjörin tilbreyting frá kjötinu. Úlfar grillaði m.a. lúðu, hlýra og skötusel.

Grillaðu humar í sumar
Humar er eitt vinsælasta hráefnið á grillið þegar við viljum vera flott á því. Úlfar grillaði m.a. ástríðufullan humar ...



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.