Útgáfa
Allt sem þú þarft að vita!
Nýtt Líf skiptist í 5 kafla sem eru; Heitt, Menning , Vettavangur, Fegurð og Hann/Hún. Í Menningarhlutanum segir Unnur Steinsson frá því að henni hafi aldrei liðið betur og talar um þá ómældu gleði sem óvæntur barnsburður hafði í för með sér. Við skoðum vorið í París í Vettavangnum og í Hann/Hún er alltaf partí! Ekki missa af sneisafullu Nýju Lífi á næsta sölustað.
HEITT
- Baðföt
Sundföt fyrir sumarið í sextíu og sex mismunandi útgáfum. Fyrir hann og hana. - Sólgleraugu
Sólgleraugu eru mikilvægustu fylgihlutir sumarsins, enda verja þau augun gegn sólinni og eru mikilvæg fyrir lúkkið. Finndu réttu gleraugun fyrir þig.
MENNING
- „Ég gæti alveg hugsað mér að verða heimsfrægur,“
segir Daníel Ágúst sem stefnir þó ekkert endilega að því. Hann segir Lenu Viderø frá tónlistinni, sem veitir honum útrás fyrir dýpstu tilfinningar og greddu, föður- og afahlutverkinu, afrekum sínum sem keppnismaður í hjólreiðum og ástarbréfi sem hann fékk nýlega. - Aldrei liðið betur
Unnur Steinsson er þekkt fyrir fegurð og þokka, enda ein glæsilegasta kona landsins. Og nú, 25 árum eftir að hún var kjörin Ungfrú Ísland, hefur hún aldrei verið glæsilegri. Kannski vegna þess að í lífi hennar er mikil gleði og hamingja. Hún hóf nýtt líf fyrir sex árum þegar hún giftist á ný og hóf endurbætur á reislulegu húsi í Stykkishólmi. Fyrir ári tók lífið svo óvænta stefnu þegar hún varð óvænt barnshafandi. Sú reynsla hafði í för með sér ómælda gleði en líka sálarflækjur og veigamiklar ákvarðanir.
VETTVANGUR
- Sumarið er tíminn
Hátíðasprenging hefur dunið yfir Ísland og öll sveitarfélög á Íslandi, sem hafa bolmagn til, blása nú til einhvers konar hátíðahalda yfir sumarmánuðina. Hvaða hátíðir eru þetta? Og hverju sætir? Er þetta leið landsbyggðarinnar til að halda í landann? - Vor í París
París er borg nautnaseggjanna og aldrei fegurri en á sumrin. Við tókum saman lista yfir helstu hótel, veitingastaði, verslanir, söfn og garða. Og fleira. En listinn er ótæmandi og því betra að kynna sér borgina vel áður en haldið er af stað. Og njóta þess svo að vera til þegar út er komið. Borða góðan mat, skella sér í dekur og spóka sig í sumarblíðunni.
VILTU VERA MEMM?
Draumkenndur leikur í litríkum fatnaði. Tískuþáttur eftir Veru Pálsdóttur og Hallgerði Hallgrímsdóttur.
FEGURÐ
- Æfðu þig
Hreyfing getur gefið þér sjálfstraust, betra form og betri líðan. Gefðu þér tækifæri og prófaðu þig áfram. Við tókum saman nokkrar æfingar sem þú getur gert heima. - Forskot á sæluna
Ekki skelfa sundlaugargesti með næpuhvítu litarhafti. Berðu á þig brúnkukrem þar til þú færð náttúrulegan lit frá sólinni. Drífðu þig svo í sund. Það er bæði hollt og gott auk þess sem þú ættir að fá lit strax.
HANN/HÚN
- 10 atriði sem þú vissir ekki um konur
Rósa Ísfeld í Sometime vill fá gjafir og staðfestingu á því að hún sé í fyrsta sæti. - Kaupið gull
Gull er táknmynd valdsins og hefur verið svo frá upphafi mannkyns. Það getur því ekki talist einkennilegt að stofnanir stærstu trúarbragða heims brýni fyrir mönnum að aðeins sé til einn guð og vari við átrúnaði á gullkálfa. En gull er líka öruggasta fjárfestingin ef fólk vill vernda eigur sínar. - Hugum að lífsstíl frekar en líkamsþyngd
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir segir að það skipti meira máli fyrir fólk í yfirvigt að huga að lífsstílnum en líkamsþyngdinni, þar sem megrun hefur oft þveröfug áhrif auk þess sem það er bæði betra og skemmtilegra að stuðla að heilbrigðum lífsstíl með það í huga að njóta lífsins betur.

