Útgáfa
Þá er það umhverfisvænt!
Hvernig hefur maður umhverfisvænu ferðina? Við birtum stuttan leiðarvísir með léttum ráðum um hvernig er hægt að tileinka sér vistvænni og heilsusamelgri lifnaðarhætti og spjöllum við Guðrúnu, stofnanda natturan.is, sem reyndist hafsjór af fróðleik um nátturuvernd.
Í blaðinu er einnig að finna sögu af gömlu glæsihúsi í Þorlátshöfn sem er til eftirbreytni. Húsið hafði grotnað niður og virtist sér enga von eiga. Nú hefur það verið hafið upp til fyrri glæsileika og er bænum til sóma.
Við höldum einnig uppteknum hætti og skoðum erlendan arkitektúr. Að þessu sinni varð suðurkóreska arkitektastofan Mass Studies fyrir valinu en stofan vekur meðal annars athygli fyrir nýstárlega framtíðarsýn og sýnir hvernig arkitektar eiga að bregðast við framtíðinni.
30 ráð fyrir vistvæn heimili
Allir vilja verða umhverfisvænni en margir vita varla hvar á að byrja. Að flokka ruslið í öreindir hljómar einhvern veginn ekki nógu vel. Hús og híbýli tóku saman 30 skotheld ráð sem einfalda málið.
Umhverfismál fyrir alla
Vefsíðan Náttúran.is er helguð umhverfisvernd og miðlar til lesenda sinna ótal ráðum um hvernig hægt er að tileinka sér vistvænni og heilsusamlegri lifnaðarhætti.
Hreysi breytt í höll
Hjónin Grímur Víkingur Þórarinsson og Friðborg Hauksdóttir hófu til fyrri virðingar hús sem eitt sinn var meðal þeirra flottustu á Suðurlandi en var sökum vanrækslu orðið algjört hreysi.
Helgi myndhöggvari
Við kíktum á vinnustofuna hjá myndhöggvaranum Helga Gíslasyni, sem á heiðurinn af flottum verkum út um allt land.
Geggjað hús í London
Fjölmiðlamaðurinn Paul Roseby og leikritaframleiðandinn James Tod eiga glæsilegt hús með stórum garði í London. Þeir eru úrræðagóðir og heimilið er fullt af góðum hugmyndum.
Sló við stærstu listasöfnunum
Listamaðurinn Banksy bryddar stöðugt upp á nýjungum sem ekki eru fordæmi fyrir. Uppátæki hans eru alræmd, til dæmis þegar hann dulbjóst og hengdi upp verk eftir sig á nokkrum þekktustu söfnum heimsins, Louvre í París, Tate í Lundúnum, MoMa í New York og fleirum.
Kraftmikill arkitektúr
Gríðarleg fólksfjölgun í borgum og fjöldaframleiðsla eru viðfangsefni sem hin margverðlaunaða arkitektastofa Mass Studies leitast við að rannsaka í gegnum arkitektúrinn.
Bryndís og Jón Baldvin á Vesturgötunni
„Það þarf milljónera til þess að gera þetta hús fullkomlega í stand,“ sagði Bryndís Schram í Húsum og híbýlum árið 1985. Við hefjum nýjan þátt í blaðinu, Gamla innlitið, á því að rifja upp heimsókn til þeirra.

