Útgáfa
Spörum en eldum flott!
Við lögðumst undir feld til að finna út skemmtilega aðferð við að sameina sparnað, góða matargerð og skemmtilegt tímaritsefni. Við heimsóttum fangelsið að Litla Hrauni þar sem við buðum deild 2-A upp á kennslu í matreiðslu og það sýndi sig að alveg sama hversu ömurlegar aðstæðurnar eru: matargerðin er eitthvað sem við getum öll sameinast um. Uppskriftirnar sem fylgja þessum þáttum eiga erindi við alla, sérstaklega núna þegar margir vilja spara. Fangarnir hafa eðlilega ekki kost á dýru hráefni svo að þátturinn á Hrauninu reyndist vera geysilega sniðugur.
Árstíðin á markaðnum
Dominique fjallar um markaði í Perugia á Ítalíu.
Garðveislur og skreytingar
Gerður stílisti notaði frjótt ímyndunaraflið til að setja upp fallega garðveislu.
Daglegt brauð
Sirrý tók tæknina í sínar hendur og bakaði dýrindis brauð í brauðvél.
Lambakjöt launþeganna
Úlfar sýnir hér snilli sína með lambakjöt að vopni.
Rabarbari
Sirrý lék sér að dýrindis rabarbara og bjó til kryddsultu, köku og fleira.
Gómsætt án sykurs
Seiðandi sumarsalöt eru viðfangsefni Hönnu að þessu sinni.
Pítsa fyrir léttar pyngjur
Úlfar sýnir hvernig hægt er að útbúa staðgóða máltíð fyrir lítinn pening og allir eru ánægðir.
Fangar læra að elda
Við fórum á Litla Hraun og kenndum föngunum að matbúa dýrindis máltíðir fyrir lítinn pening.
Laukur – bragðgóður og billegur
Laukur er dýrindis hráefni og Úlfar sýnir hér nokkrar bragðgóðar útfærslur af honum.
Korter í núðlur
Núðlur eru tilvaldar í matargerðina þegar við hugsum um pyngjuna.
Eitt vín – einn réttur
Nicolas Vergnaud elti ástina til Íslands og eldar hér rétt með vínum frá Côtes du Rhône.
Kokkurinn og Kjartan
Þeir félagar heimsóttu veitingahúsið Gullfoss í gamla Eimskipafélagshúsinu.
Gangi ykkur vel í sumarblíðunni og notfærið ykkur bráðsniðugar hugmyndir sem fæddust í sumarlegum vangaveltum okkar.

