Útgáfa

gg0704

Minning um mat

26.5.2007

Lesendur Gestgjafans hafa óskað eftir því að áhöfn Gestgjafans fjalli um „mömmumatinn“, þennan gamla og góða. Ákveðið var að verða við þessum óskum og að þessu sinni er það heimilismaturinn sem fyllir Gestgjafann, nýir og gamlir réttir í bland.

  • Nokkrir stórir og stæðilegir mömmudrengir rifja upp hvernig maturinn var hjá mömmu þegar þeir voru að alast upp.

 

  • Ómótstæðilegar hugmyndir að nýstárlegum fyllingum í pönnukökur. Pönnukökur þarf ekki bara að borða með sykri eða sultu og rjóma!

 

  • Bollur af öllum stærðum og gerðum. Kjöt-, fiski-, grænmetis- og kjúklingabollur frá grunni.

 

  • Nú er rétti tíminn til að fara að huga að vorverkunum og setja niður alls kyns fræ; grænmetis-, salats- og kryddjurtafræ auk fræ ætra blóma.

 

  • Bökur geta verið fljótlegar, einfaldar og dásamlega góðar. Við erum með uppskriftir að girnilegum og matarmiklum bökum.

 

  • Gamla góða ýsan er uppistaðan í nokkrum nýstárlegum og spennandi réttum.

 

  • Jóhanna Vilbergsdóttir og Ólafur B. Schram leggja mikið upp úr samverustund fjölskyldunnar á matmálstímum. Jóhanna er mikill kokkur auk þess að vera móðir tveggja ungra dætra sem þurfa sinn holla mat sem verður þó að höfða til þeirra fullorðnu líka.

 

  • Veitingahúsarýni - Úlfar og Kjartan heimsóttu einn rótgrónasta veitingastað borgarinnar, Lauga-Ás.
     

Gómsætt án sykurs - Roberto Bava - Galakvöldverður á Holtinu – Þrep fyrir þrep – Búðaráp – Sunnudagskakan – Allrahanda – Molar – Bix – Vínbix - Happdrætti



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.