Útgáfa
Einkaviðtal við Björk!
HEITT
Nett en náttúruvænt
Það er engin ástæða til að vera hallærislegur þótt maður sé grænn. Til eru hönnuðir sem hanna flottan tískufatnað á umhverfisvænan máta. Stella McCartney er einn þeirra. Kynntu þér málið.
Eyddu með hreina samvisku
Hvort sem þú ert að kaupa praktískar vörur, tískufatnað eða fatnað fyrir börnin getur þú gert góð kaup hér á landi þótt þú viljir versla í sátt við náttúruna.
Góð kaup á Netinu
Á Netinu eru fjölmargar síður þar sem hægt er að versla með góðri samvisku við fyrirtæki sem hafa siðferðisgildin í lagi.
Leggðu þitt af mörkum
Verndaðu náttúruna og byrjaðu heima. Veistu ekki hvað þú átt að gera eða hvernig þú átt að byrja? Lærðu af Náttúruspilunum.
MENNING
Dagatal
Austfirðingar eru í banastuði í júlí. Í Bræðslunni á Borgarfirði koma fram Emiliana Torrini og Damien Rice, ásamt stjörnurokkaranum Magna. Þá verður L.Ung.A á Seyðisfirði þar sem unga fólkið fær að njóta sín í hinum ýmsu listsmiðjum. Miðbæjarrotturnar ætla þó að hafa eitthvað fyrir stafni líka og halda Sumargleði Kimi Records.
Lestu
Þórarinn Þórarinsson skrifar um góðar bækur að vanda. Nú er Project: Iceland eftir Charlie Strand bók mánaðarins, enda dúndurflott ljósmyndabók. Ókei bæ tvö er líka tekin fyrir sem og Brúðkaupsnóttin og 101 Ísland – Áfangastaðir í alfaraleið, bók sem leiðir lesendur á 101 viðkomustað í alfaraleið við þjóðvegi landsins.
Hlustaðu
Nú er Lena Viderø glöð – með Sigur Rós í spilaranum. Lena skrifar um góða tónlist eins og Múgsefjun, Sigurð Guðmundsson og Memfismafíuna, 100 bestu lög lýðveldisins og hina gömlu góðu Jæja, vinur með Texas Jesús.
Umhverfisvænar stjörnur
Tom Cruise naut sín í náttúrunni á búgarði sínum þegar hann lét aðstoðarfólk sækja uppáhaldsgosdrykk eiginkonunnar á einkaþotunni. Tal um hlýnun jarðar hefur komið umhverfisvernd í tísku. En hversu duglegar eru Hollywood-stjörnurnar í raun og veru við að gera heiminn grænan?
Forréttindi að búa í ferðatösku
Elín Hansdóttir er vaxandi listakona sem starfar í Berlín og hefur sýnt víða. Hún hefur til að mynda sýnt verk sín á sama stað og sama tíma og David Bowie. Nú síðast var hún lofuð fyrir verk sitt í Listasafni Íslands á Listahátíð Reykjavíkur. Markmið hennar er að áhorfandinn upplifi mátt sinn og móti listaverkið með eigin upplifun. Hún ræðir listina, lífið og græna lífsstílinn.
Innlit
Aftur-systur eru grænar í gegn. Þær hanna tískufatnað úr ónýtum fötum og innanstokksmunirnir í búðinni eru meira og minna endurnýttir. Meira að segja fataslárnar eru gamlar bambusstangir sem urðu afgangs þegar barinn Boston var innréttaður.
Allt er ást
„Ég er orðin þrjátíu og eins árs, ég á ekki bíl, ekki íbúð og ekki börn og fólki finnst ég skrítin út af því,“ segir Hrafnhildur í viðtali við þær systur, Hrafnhildi og Báru Hólmgeirsdætur, um líf þeirra og starf og hugmyndina um skemmtilega endurvinnslu.
Vín
Ballantine‘s er skoskt viskí í gæðaflokki sem er alltaf ljúffengt, hvort sem það er drukkið eitt og sér eða með ísmolum eða sett út í kokteila eða kaffidrykki. Og ískurlaður Baileys-hristingur er frísklegur sumarkokteill sem auðvelt er að blanda. Ásmundur Helgason skrifar um áfenga drykki.
Það sem ég hef lært
„Ég sest við foss og niðurinn í fossinum yfirgnæfir niðinn í höfðinu, hugurinn hreinsast og í tóminu myndast rúm fyrir nýjar hugmyndir.“ María Ellingsen skrifar um það sem hún hefur lært af skóla lífsins.
Einkaviðtal við Björk Guðmundsdóttur
„Þegar ég var með Sindra var ég einstæð og átti ekki krónu en hafði allan tíma í heiminum. Núna hef ég ekki eins mikinn tíma með Ísadóru en get borgað fólki fyrir að vinna fyrir mig,“ er á meðal þess sem Björk segir í áhugaverðu viðtali um ferilinn, tónlistina og einkalífið.
VETTVANGUR
Glósur
Fyrirtæki framtíðarinnar virkja hugvit og verkkunnáttu í sátt við náttúruna.
Innblásið af Íslandi
Þau eru frumkvöðlar, hvert á sínu sviði, sem eiga það sameiginlegt að unna og vinna með Íslandi, hinar nýju landvættir Íslands. Þetta er framvarðarsveitin í baráttunni gegn náttúruspjöllum; hugmyndasmiðir, listamenn, hönnuðir, snyrtivöruframleiðendur og síðast en ekki síst matvælaframleiðendur.
Mannkynssaga fyrir byrjendur: Fimmti hluti
Umhverfisvinir og umhverfissóðar voru byrjaðir að takast á á Íslandi löngu áður en Kárahnjúkavirkjun varð að hugmynd. Þórarinn Þórarinsson tekur saman atburði liðinna tíma.
Litla gula hænan
„Náttúruvernd var úthýst úr kerfinu þegar stóriðjunni var fórnað landi og auðæfum óborinna Íslendinga,“ segir Guðmundur Páll Ólafsson, guðfaðir íslenskra náttúruverndarsinna og höfundur bókanna Ströndin, Hálendið og Fuglar í náttúru Íslands. Hann skrifar um reynslu sína af baráttunni.
Mannkynssaga 2.0
„GSM-síminn,“ sagði vinur minn um daginn, „er ekki bara búinn að leysa af venjulegan heimilissíma. GSM-síminn er á góðri leið með að leysa af dyrasíma. Fólk er farið að hringja úr GSM-símanum sínum til þess að segja að það sé fyrir utan hjá manni.“ Guðmundur Steingrímsson skrifar um helstu byltingar tækninnar og spyr hvort Google geri okkur heimsk.
Íslensk náttúra – njóttu
Af hverju skellir þú þér ekki á rúnt um landið? Þú verður ekki fyrir vonbrigðum. Við tókum saman nokkrar helstu perlur landsins, sem eru ófáar og eins fjölbreyttar og þær eru margar. Þú gætir til dæmis gengið í Stórurð, undraheim Dyrfjalla. Eða baðað þig í Hellulaug í Vatnsfirði sem er gullfalleg hlaðin laug sem er í flæðarmálinu.
Ísland, fagra Ísland
Lena Viderø spurði fólkið á götunni hvort það hefði ferðast um Ísland, hver þeirra uppáhaldsstaður væri og hvort það hefði lent í lífsháska í íslenskri náttúru.
FEGURÐ
Náttúruleg fegurð
Náttúrulegar snyrtivörur fyrir andlit, líkama og heilsu. Njóttu.
Viðeigandi varnir
Sólarvörn gegn útfjólubláum geislum sólar og ótímabærri öldrun húðarinnar.
HANN / HÚN
10 atriði sem þú vissir ekki um konur
Elsa María Jakobsdóttir í Kastljósinu ljóstrar upp leyndarmálum kvenna og segir að vitað sé til þess að kona hafi valdið rafmagnsgítar seint á síðustu öld.
Áhrif náttúrunnar á heilsuna
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sérfræðingur í geðrækt, minnir okkur á að umhverfið hafi áhrif á heilsuna og bendir á mikilvægi þess að vera meðvitaður um það.
Grænt og vænt kynlíf
Kynlíf er kannski ekki það fyrsta sem við hugsum um til að gera líf okkar grænna en engu að síður er margt hægt að gera til að bæta umgengni okkar við jörðina og um leið samlífið. Stundum grænna kynlíf og notum tækifærið til að kveikja nýja neista í leiðinni.
Allir í góðum gír bara?
Þannig spurði Jónsi í Sigur Rós á Náttúrutónleikunum sem voru haldnir í Laugardalnum 28. júní. Nýtt Líf var á staðnum og lagði mat á bæði tónleikana og stemninguna.
Stjörnuspá
Vinnan leikur aðalhlutverkið í lífi Krabbans í þessum mánuði og hann fær tækifæri til að bæta stöðu sína. Á meðan leysir Sporðdrekinn pirrandi vandamál sem hafa hrellt hann lengi. Steingeitin aftur á móti þarf að fara að sýna sínar faglegu og ábyrgu hliðar.

