Útgáfa

so0808

Ótrúlegasti herforingi sögunnar

16.7.2008

Stútfullt tölublað Sögunnar Allrar er komið í verslanir, meðal efnis má nefna:

Jóhanna af Örk // Hún var venjuleg sveitastúlka sem fékk vitrun frá Guði og leiddi franska herinn til sigurs í mörgum mikilvægum orrustum sem breyttu gangi hundrað ára stríðsins. Síðan var hún handsömuð af Englendinugm og brennd á báli. Nú er hún dýrlingur og frelsishetja Frakka. Lesið ótrúlegu sögu Jóhönnu af Örk.

Hermenn með flekkaðan heiður // Franska útlendingaherdeildin er fræg fyrir hugrekki. En úrvalsdeildin er líka þekkt fyrir að laða að vafasamar persónur, einso g fyrrum hermenn í Waffer-SS-deildum Hitlers.

Meistari spakmælisins // Breski rithöfundurinnOscar Wilde var meistari í spakmælum og snilldarlegum tilvitnunum eins og „Eina leiðin til að sigrast á freistingu er að falla fyrir henni“.

Undur fornaldar // Hengigarðarnir í Baýlon // Fjálglegar lýsingarnar á hinum hangandi skrúðgörðum í Babýlon minna helst á lýsingar á jarðneskri paradís. Nebúkadnesar II konungur á að hafa látið byggja garðana til að gleðja konu sínu. En voru þeir nokkurn tímann til í alvöru?

Elenóra af Akvitaníu // Hún var ein kunnasta drottning miðalda, gift konungum bæði Frakklands og Englands, móðir Ríkharðs ljónshjarta og lifði afar viðburðaríku lífi.

Goðsagnakenndar útópíur // Atlantis á að hafa verið stærri en Líbía og Litla-Asía samanlagðar og ógnað Aþenu með framandi tækni og vísindum. En Atlantisbúar gerðust of hrokafullir og guðrirnir sökktu þeim í hafið. Er eitthvað til í sögunum af Atlantis, Eldorado, Thule og Shangri-La?



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.