Útgáfa

hh0910

Sveitarómantík

16.7.2008

Á sumrin er kjörið að krúsa um landið og fá sveitarómantíkina beint í æð. Við brunuðum í Stykkishólm og kíktum á falleg ævagömul hús, Vatnasafnið og fleira. Einnig lögðum við leið okkar á Siglufjörð þar sem náttúran er kynngimögnuð, friðsældin engu lík og allir virðast þekkja alla. Tilvalið í sumarblíðunni.

Antíkbúðarkona Reykjavíkur

Anna Ringsted hefur staðið á bak við búðarborðið í Fríðu frænku í 27 ár og selt bæjarbúum gamla muni. Það kemur ekki á óvart að heima hjá henni og bónda hennar, Sveini Þorgeirssyni, úir og grúir af skemmtilegu gömlu dóti.

Bauja í Birkihlið

Í útjaðri Reykjavíkur, inni í grónum skógi, sem fæstir vita af, í Úlfarsársdal, býr Guðbjörg Thoroddsen, leikai og kennari,  ásamt dætrum sínum tveimur. Hún hannaði sjálf og reisti húsið sem heitir Birkihlíð.

Jean Nouvel

Arkitektinn Jean Nouvel hefur ekki gaman af því að gera sama hlutinn tvisvar og eru byggingar hans jafnólíkar og þær eru margar. Hann hefur vakið heimsathygli fyrir frumlega, flotta og umfram allt tímalausa hönnun og glaut í ár Pritzker-verðlaunin frægu.

Líður best í Þingholtunum

Agatha Sif Guðmundsdóttir fatahönnuður og Unsteinn Örn Elvarsson lögfræðinemi búa í gulu steinhúsi í Þingholtunum. Ekki er hægt að segja annað en búslóðin þeirra hafi sál en allir hlutirnir eiga sér sögu, hvort sem þeir koma frá ömmubróður eða voru keyptir fyrir fermingarpeninga.

Vigdís sýnir Bessastaði

Fyrir 25 árum héldu blaðamaður og ljósmyndari Hús og híbýla til Bessastaða. Þar hittu þeir fyrir Vigdísi Finnbogadóttur, forseta lýðvelsidins, og röltu með henni í gegnum vistarverur íslensku forsetanna.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.