Útgáfa

ge0810

Ferskt og frumlegt

24.7.2008

Tölublað sem er troðfullt af fróðlegu, fersku og frumlegu efni. Nægir þar að nefna ómótstæðilegan súkkulaðiþátt, hugmyndir fyrir verslunarmannahelgina, risotto-veislu, nesti fyrir börnin, ferðagreinar og ýmislegt fleira.

Nú eru sumarhátíðir í gangi um allt land og mikill hugur í fólki. Sem dæmi má nefna fiskidaginn á Dalvík sem er haldinn aðra helgina í ágúst. Eftirtektarvert er hversu mikil samstaða er meðal bæjarbúa að láta daginn heppnast sem best. Bæjarbúar opna heimili sín og heyrst hefur að útlendingar sem vilja kynnast landi og þjóð í stuttri heimsókn noti tækifærið og ferðist til Dalvíkur og kynnist menningu Íslendinga vel. Það þykir virðingarvert að bæjarbúar hafa bundist samtökum um að halda áfengi og öðrum vímuefnum frá hátíðinni. Fiskidagurinn í Dalvík er dæmi um vel heppnaða hugmynd sem hefur þróast á skemmtilegan hátt í að vera einn merkilegasti viðburðurinn hér á landi yfir sumartímann.

Þeir sem hafa áhuga á íslenskri matarmenningu hafa um ýmislegt að velja þetta sumarið þar sem þorp um allt land standa fyrir uppákomum líkt og Dalvíkingar. Auk þess má nefna sýningu sem félagið Matur – saga – menning mun standa fyrir á haustdögum og mjög spennandi landbúnaðarsýningu sem haldin verður á Hellu í ágúst þar sem m.a. verða kynntar ýmsar nýjungar í matvælaframleiðslu. Mataráhugafólk ætti ekki að láta sig vanta á þessar uppákomur.

  • Það er alltaf tilefni til að gera vel við sig með súkkulaði og hér koma nokkrar sumarlegar og súkkulaðisætar uppskriftir sem gaman er að bjóða upp á hvernig sem viðrar.
  • Rósa gefur okkur hér hugmyndir að hollu og fljótlegu nesti fyrir börnin, t.d. múffur, samlokur og orkudrykk.
  • Nokkrir rómaðir fagurkerar hittast reglulega og elda saman ítalska sælkeraréttinn risotto.
  • Ein mesta ferðahelgi sumarsins er framundan. Hér ætlum við að gefa ykkur nokkur ráð hvernig hægt er að flýta fyrir og vera vel undirbúinn fyrir helgina. Holugrill, uppskriftir og margt fleira ...
  • Í löngum gönguferðum og sér í lagi erfiðum fjallgöngum er rétt val á næringu mikilvægt en það þarf að vera orkuríkt, auðmeltanlegt, létt, fyrirferðarlítið og ekki síst bragðgott. Gerður tók saman nokkrar góðar og hagnýtar upplýsingar varðandi þetta.
  • Sigurður Gíslason, yfirkokkurinn í Turninum, sá um að útbúa 10 rétti úr mjólkurlömbum en það eru lömb sem slátrað er þegar þau eru 4-6 vikna gömul.

Skoða áskriftartilboð!



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.