Útgáfa

nl0810

HEITT / MENNING / VETTVANGUR / FEGURÐ / HANN/HÚN

31.7.2008

HEITT

Hátískan Hallgerður Hallgrímsdóttir leiðir okkur um draumkenndan veruleika hátískunnar sem á uppruna sinn að rekja til Parísar. Eins fáum við forsmekkinn af því hvað hönnuðir ætla að bjóða upp á á komandi hausti.

Búðaráp í sófanum Ekki þarf að standa upp úr sófanum til að versla. Brynja Dögg Friðriksdóttir sýnir okkur hvernig hægt er að gera góð kaup á Netinu.

MENNING

Unnið með manneskjuna... Steinunn Þórarinsdóttir myndlistarmaður og Jón Ársæll Þórðarson sjónvarpsmaður hafa verið saman í tæp þrjátíu ár og búið sér fallegt heimili í Vesturbænum. Þau vinna bæði með manneskjuna, hún í heillandi verkum sínum og hann í margverðlaunuðum sjónvarpsþætti sínum, Sjálfstæðu fólki. 

Dagatal Það er ýmislegt um að vera í ágústmánuði sem byrjar með verslunarmannahelginni. Innipúkinn ætlar að halda uppi fjörinu í Reykjavík meðan ýmislegt verður að gerast úti á landi. Heljarinnar fjör verður á Hinsegin dögum en að þessu sinni verður sérstök opnunarhátíð sem ekki hefur verið áður. Eric Clapton ætlar að heimsækja vora þjóð og halda tónleika ásamt hljómsveit í Egilshöll.

Lestu // Hlustaðu // Kynlífskaup í Hollywood // Í leikhúsi með fjögur kvikindi á brjósti  // Rýnt í textann // Innlit // Matur // Kokteilar úr sígildum áfengistegundum.

VETTVANGUR

Glósur Er annar þessara manna virkilega tilvonandi leiðtogi heimsins? Fleyg ummæli Baracks Obama og Johns McCain forsetaframbjóðenda í Bandaríkjunum.

Mannkynssaga fyrir byrjendur: sjötti hluti Fyrir tólf árum var sigur Ólafs Ragnars Grímssonar í forsetakosningunum ekki svo sjálfsagður. Mörgum hægrimanninum rann kalt vatn milli skinns og hörunds og nokkrir buðu sig fram á móti honum. N nú er öldin önnur og Ólafur Ragnar er sjálfkjörinn í embættið.

Lúxus Eftirspurn eftir lúxusvörum fer sívaxandi þrátt fyrir vaxandi vanda í efnahagsmálum. Guðmundur Steingrímsson segir frá „premium- væddum“ vörum sem er ekki á allra færi að kaupa.

Kaupmannahöfn er gömul og gróin borg sem býður upp á fjöldann allan af spennandi veitingastöðum, klúbbum, búðum og söfnum. Veitingastaðurinn Reefnbeef býður til að mynda upp á krókódíl og kengúru og mikið er um litríkan og skemmtilegan fatnað í versluninni WoodWood. En það er líka hægt að gerast menningarlegur og skoða öll söfnin sem í boði eru og skella sér svo í dekur inn á milli eins og á Samadhi sem er umhverfsvæn heilsulind.

Friðlausi fuglinn. Andrea Magnúsdóttir hannar fantasíufatnað í Danmörku undir merkinu AndreA. Hópur Íslendinga sem er að gera það gott í tískuheimi Kaupmannahafnar galdraði fram heillandi tískuþátt.

Á vegum úti. Tískuþáttur eftir Veru Pálsdóttur, Öldu b og Fríðu Maríu.

FEGURÐ

Ekki þinn hárdagur? Er hárið litlaust og þurrt eða er sólin að lýsa hárið óþarflega mikið? Taktu málin í þínar hendur og gerðu hárið heilbrigðara og sterkara með einföldum hárvörum sem hannaðar eru fyrir hvert og eitt hárvandamál.

HANN / HÚN

10 atriði sem konur vissu ekki um karla Hugleikur Dagsson er með það á hreinu að alltaf þegar karlmaður hnerrar verður hann aðeins sköllóttari.     

Rafmagnsbíllinn er alls kostar ekki síðri en bensínbíllinn. Þegar upp er staðið er hann jafnvel betri í alla staði með tilliti til mengunar eða hraða. Ingólfur H. Ingólfsson fjármálaráðgjafi leiðir okkur í allan sannleika um staðreyndir og kosti rafmagnsbíla.

Óplanað ævintýri // Tjáning líkamans skiptist í átta frumöfl // Stjörnuspá // Gleði gleði gleði         



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.