Útgáfa
Hús og híbýli
Byggði sér hof og sefur í víkingarúmi
Listamaðurinn Stefán Richter Gunnlaugsson byggði sér nútímalegt fornnorrænt hof í Grímsnesi. Þar fá hlutir eins og sverð, spjótsoddar, skildir, víkingaskip og draugaskip að njóta sín.
Lýsingarhönnun er listgrein
Jón Otti Sigurðsson tæknifræðingur og Ragnheiður Aðalsteinsdóttir búa í parhúsi í Ásahverfinu í Garðabæ. Húsbóndinn hannaði lýsinguna í húsinu sem er ævintýri út af fyrir sig.
Beggi og Pacas í 100 ára gömlu húsi
Guðbergur Garðarsson og Inácio Pacas da Silva Filho, betur þekktir sem Beggi og Pacas, eiga lítið sætt hús í einu grónasta hverfi Hafnarfjarðar. Þeir hafa gert húsið upp af miklum myndugleik og láta jafnan hjartað ráða för.
Listaháskóli Íslands kominn í miðbæinn
Hin útópíska framtíðarsýn felur í sér að allar deildir skólans séu sameinaðar undir einu þaki þar sem skapast stormsveipur hugmynda og sköpunar sem almenningur fær að fylgjast með.
Húsgögn tekin í gegn
Nú þegar krepputalið tröllríður samfélaginu ákvað blaðamaður að fara í Góða hirðinn, finna ódýr, lúin húsgögn og taka þau í gegn. Það kann buddan að meta!
Heimili Gyllta kattarins
Í risi við eina þrengstu tvístefnugötu Reykjavíkur býr Ása Ottesen, stílisti í Gyllta kettinum, ásamt Elísi Péturssyni, meðlim í hljómsveitinni Jeff Who?
Slóvenskur arkitektúr
Slóvenska arkitektastofan OFIS hefur verið að sækja í sig veðrið og vakið heimsathygli. Byggingarnar eru ægifagrar, litríkar og hressandi.
Rokkar í rósum
Margrét Sara Oddsdóttir, eigandi verslunarinnar Rokk og rósir, býr í fallegri íbúð við sjávarsíðu Vesturbæjar þar sem úir og grúir af fallegum munum og listaverkum.
Hitt + þetta // Spurt og svarað // Flott og fundið // Myndaþáttur // 10 hlutir // Hús og híbýli langar í ? // Gamla innlitið // Áskrifendatilboð // Hönnunarsagan // Uppáhaldshúsið

