Útgáfa
Stóra tekjublaðið, laun 2550 Íslendinga
Stóra tekjublaðið er komið!
Mikil spenna ríkir ár hvert þegar upplýst er hver greiðir hæstu opinberu gjöldin á landinu. Tekjur 2.550 Íslendinga eru tíundaðar í Stóra tekjublaði Mannlífs. Hverjir hafa hæstu tekjurnar og hvað fá lægstu tekjuhóparnir? Er teljandi munur milli umdæma og má sjá mun á milli kynja í sömu störfum? Þessum spurningum er svarað í Stóra tekjublaðinu.
Í Stóra tekjublaðinu eru þó ekki einungis tekjulistar. Í Mannlífi eru einnig fréttaskýringar, viðtöl og úttektir.
Lárus Stefán Þráinsson gekk á veggi allt sitt líf. Hann gafst upp sumarnótt eina í júní síðastliðnum og batt enda á líf sitt. Þráinn Lárusson, faðir Lárusar, segist hafa tekið þá ákvörðun að þessi atburður skyldi aldrei verða feimnismál og er saga sonar hans rakin í ítarlegri grein.
Bryndís Jakobsdóttir hefur heldur betur skotist upp á stjörnuhimininn. Tónlistarheimurinn er margbreytilegur og kemur Dísu sífellt á óvart þrátt fyrir að hún sé fædd inn í tónlistarlífið, enda dóttir tónlistarfólksins Röggu Gísla og Jakobs Frímanns. Dísa segir Mannlífi frá framtíðardraumum sínum en hún stefnir á óhefðbundnar lækningar í framtíðinni þó að tónlistin eigi hug hennar allan sem stendur.
Er nauðsyn á embætti forseta Íslands? Hver eru rökin með og á móti?
Öfuga tréð, þunglyndir hvuttar og trommuleikarar sem þurfa að púla til jafns við atvinnumenn í knattspyrnu.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson rekur sögu kalda stríðsins og fer ítarlega yfir ástæður þess og áhrif á íslensk stjórnmál.
Hún er orðin leið á dópinu og ætlar að selja fyrirtækið. Anna er aðalpersóna nýjustu myndar Sólveigar Anspach sem kýs að nota alvörukonur í myndir sínar.
Guðmundur Þóroddsson, fráfarandi forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, er umdeildur maður. Kostir hans og gallar eru tíundaðir í stuttu máli.
Lokasvarið á hin skelegga stjórnmálakona Guðríður Arnardóttir í Kópavogi.

