Útgáfa
Bomba!
Extra Gay! - Bjarni Ármansson flytur með fjölskyldunni til Noregs – Ofurfyrirsætan Ásdís Rán með tilboð upp á 2 millur – Hafnaði heimsfrægðinni – Söngleikjaprins í Svíþjóð – Köflóttur í bíó – Tryllti Paris Hilton – Arnar Gauti fékk ekki að gista heima – 300 manna veisla – Brjóstin beruð – Richard og rakkinn
Prinsessan stal senunni! Jóhanna Hildur, dóttir Ingu Lindar Karlsdóttur, er rétt rúmlega tveggja mánaða gömul en strax farin að stela senunni frá flottustu konum Íslands – hvar sem hún fer. Litla krílið minnti helst á prinsessu þar sem hún horfði á heiminn, dúðuð upp í topp, af tröppunum hjá Loga Bergmann og Svanhildi Hólm á Davík.
Svava í Sautján og Björn Sveinbjörnsson keyptu fyrir nokkru einbýlishúsið í Kvistalandi 12 og ráðgera breytingar á því. Nú eru þau að kaupa annað hús í sömu götu.
Bubbi og Hrafnhildur gengu í það heilaga fyrr í sumar og hefur ást þeirra svo sannarlega borið ávöxt þar sem turtildúfurnar eiga von á litlum sólargeisla sem kemur í heiminn snemma á næsta ári.
Starfsfólk MAC á Íslandi fagnaði góðu gengi á fjárhagsárinu með fyrirlestraferð í Bláa lónið og fjörugu kvöldi á Tapas-barnum og Apótekinu.
Rúmlega fjörtíu atriði voru skráð í gönguna og hafa þau aldrei verið fleiri. Útvarpsmenn Flass, þeir Frikki og Danni, létu ekki sitt eftir liggja og fegruðu miðvæinn með nærveru sinni, gleði og samstöðu.

