Útgáfa

ge0811

Berjatíminn!

14.8.2008

Í þessu tölublaði má meira að segja finna hugmyndir að því hvernig nota má hráefni úr eldhúsinu í snyrtivörurnar frekar en að kaupa þær dýrum dómum í verslunum. Og nú er árstíminn þegar náttúran hér á landi er gjöfulust. Þeir sem hafa verið duglegir við að rækta sjálfir fá nú ríkulega uppskeru eftir mjög gott sumar. Hinir geta keypt ferskt grænmeti og ávexti í verslunum og notað hugmyndirnar úr þessu tölublaði til að útbúa dásamlega og heilsusamlega rétti úr öllu þessu dýrlega hráefni.

Hannar húfur og grænmetisrétti Halldóra Emilsdóttir er mikil listakona og ekki síður þegar kemur að því að elda grænmetisrétti. Hún bauð nokkrum vinum til veislu.

Hnúðkál fyrir líkama og sál Hnúðkál er kálplöntutegund sem hefur ekki verið mikið áberandi en er ákaflega gott og hollt. Úlfar sýnir okkur hvernig hægt er að elda ótrúlega girnilega rétti úr hnúðkáli.

Kartöflur í baksturinn Kartöflur eru ekki bara góðar sem meðlæti heldur er hægt að baka úr þeim dýrindis kökur, t.d. súkkulaðiköku, eplaköku og skonsur ...

Gómsætt án sykurs

Ber Berin eru snemma á ferðinni í ár og góð tíð hefur valdið því að berjaspretta er óvenjulega góð. Hér á eftir eru grunnuppskriftir að hefðbundnu hlaupi, líkjörum sem gott verður að dreypa á um jólin og einnig kryddsultu (chutney) sem á eftir að slá í gegn með villibráðinni.

Korter í grænmetisrétti Sirrý gerði nokkra frábæra og fljótlagaða grænmetisrétti.

Æskubrunnur úr eldhúsinu Það þarf ekki að leita langt yfir skammt eftir snyrtivörum. Leitum í eldhúsinu eftir tilvöldu hráefni til að bera á húðina!

Þrep fyrir þrep Hvernig býr maður til sultur og hlaup?

Óvissuferð í boði Belcolat Belgar eru m.a. þekktir fyrir dýrindis súkkulaði. Gerður kynntist því í óvissuferð sem fyrirtækið Íslensk-Ameríska bauð til.

Sunnudagskakan Sirrý bjó til mjög spennandi kúrbíts-súkkulaðiköku sem enginn stenst en er þó í hollari kantinum.

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ!



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.