Útgáfa

nl0811

Sorgir, sigrar og svarthvít ást

28.8.2008

HEITT

-          Haust- og vetrartískan 2008 – 2009

Hin gráa naumhyggja, pífur upp á punt, geimskutlur, munstursmanía, litli svarti kjóllinn, einlitt, dömulegt drapp og stórir kragar eru á meðal þess sem konur ættu að leggja áherslu á í vetur. Þá eru fylgihlutir í harðari kantinum og leðurhanskar ómissandi.

Karlmannlegir loðfeldir, köflótt mynstur og flauel er aftur á móti það heitasta í karlatískunni.

Hallgerður Hallgrímsdóttir tók saman helstu trendin fyrir haust- og vetrartískuna.

 

MENNING

-          Á döfinni

Það er nóg að gerast á næstu vikum. Þar ber helst að nefna Menningarnótt og Jazzhátíð Reykjavíkur, arabíska stemningu í Perlunni, óvissuferð Ferðafélags Íslands og ellefu laga hugleiðslu um ástaratlot með Sebastien Tellier á Nasa. Fylgstu með dagatalinu.

-          Lestu

Saga ástarinnar er hvorki sjálfshjálparbók né kláða- eða kerlingabókmenntir. Hún er falleg og ljóðræn saga fyrir alla og getur gert heilmikið fyrir miðaldra karla, segir Þórarinn Þórarinsson. Hann mælir einnig með Svartnætti, Íslenskum kynjaskepnum og útnefnir Hjarta Voltaires bók mánaðarins.

-          Hlustaðu

Stíll Modern Guilt með Beck minnir helst á blöndu af The Ronettes, Bítlunum, Led Zeppelin og N.E.R.D á meðan Jack Johnson spilar einfalda, rólega og þægilega tónlist á Sleep Through the Static og Oracular Spectacular með MGMT er gleðileg og kynþokkafull plata og Kira Kira leiðir mann inn í litskrúðugan frumskóg með plötu sinni, Our Map to the Monster Olympics.  

Lena Viderø skrifar um góða tónlist.

-          Um hvað fjallar Rómeó og Júlía?

Katrín Jakobsdóttir rýnir í texta eftir Bubba við lagið Rómeó og Júlía. Titillinn vísar í eitt frægasta par heims en Katrín segir textann undurfallegan þrátt fyrir að hann bregði upp nöturlegri mynd af pari sem fellur fyrir eitri og sekkur djúpt í draumamyrkrið.

-          Óður til dökkhærðra kvenna

Marilyn Monroe var ein helsta kynbomba síðustu aldar og hefur líklega mótað staðalímyndina af ljóskunni sem hefur verið allsráðandi í afþreyingariðnaðinum. Nú eru hins vegar breyttir tímar og hin dökkhærða Angelina Jolie, sem sameinar bæði melluna og madonnuna, hefur meiri áhrif og völd í bransanum en Monroe hefði getað látið sig dreyma um

-          Falleg föt með samvisku

Tristan Gribbin bjó um árabil á Íslandi þar sem hún sýndi einleikinn Ferðir Guðríðar og lék í íslenskum bíómyndum. Nú býr hún í Bandaríkjunum, ásamt íslenskum eiginmanni sínum og börnum, stundar hugleiðslu og hannar umhverfisvæn föt. Hún er sannfærð um að andleg málefni og umhverfisvernd verði mikilvægari komandi kynslóðum en þeim eldri og ef allir gætu upplifað kraft íslenskrar náttúru yrðu aldrei aftur stríð.

-          Ég stefni á Ólympíuleikana 2024

Óttar Proppé lifir nú gamlan draum með því að vinna í bókabúð. Hann segist hafa verið skrítið barn og man ekki eftir sér öðruvísi en rýnandi í bækur. Á meðan hinir krakkarnir dáðu söngvara eða fótboltamenn var Tinni hans fyrirmynd. Hann hefur þó lært að njóta þess að vera álitinn skrítinn og líður best þegar breytingar standa yfir. Nú stundar hann siglingar af kappi og stefnir á Ólympíuleikana 2024.

-          Bleikja með hollandaise-sósu og steinseljurótarmauki

Ekki standa á gati fyrir matarboðið. Kokkar Panorama leiða okkur í gegnum uppskrift að hollum, einföldum og unaðslegum rétti. Aðalréttur fyrir fjóra.

-          Piparsveinaíbúð Gillzeneggers

Egill Einarsson fékk sér rauðan sófa af því að hann fór honum svo vel. Hann býr í sannkallaðri piparsveinaíbúð í Kópavoginum, með pool-borð og píluspjald í stofunni.

-          Skóli lífsins

Þegar Þorvaldur Þorsteinsson var spurður hvað hann hefði lært birti hann vasaleikrit um skólalífið, Að lesa kött: „Teitur litli: ... af því að mér þótti svo vænt um hann ákvað ég að láta stoppa hann upp og þess vegna getum við alltaf verið saman og þá þarf okkur ekki að líða eins illa og ef ég hefði grafið hann.“

-          Sorgir, sigrar og svarthvít ást

Dísella Lárusdóttir segir frá sambandi sínu við svartan eiginmann, óperuheiminum þar sem ætlast er til þess að fólk hvorki eignist maka né börn, útlitskröfunum sem hún uppfyllir ekki, áfallinu sem hún upplifði í æsku þegar móðir hennar fékk heilablóðfall, sorginni sem heltók hana þegar hún missti föður sinn og draumunum um framtíðina.

 

VETTVANGUR

-          Glósur

Ástandið í Úganda og máttur míkrólána.

-          Mannkynssaga fyrir byrjendur

Eiríkur Jónsson er blaðamaður án hliðstæðu. Þórarinn Þórarinsson fór í úrklippubækurnar og gróf upp nokkrar einstakar fréttir Eiríks í gegnum tíðina eins og þessa um hommana sem fengu ekki að búa saman og íbúana sem gáfust upp á ólykt nágrannans.

-          Navia

Tvær ólíkar konur með ólíkan bakgrunn taka höndum saman til að styrkja samskipti Norðurlandanna og Afríku. Eftir að hafa séð vosbúðina í Indlandi þar sem hún starfaði með Eskimo-models gat Bjarney Lúðvíksdóttir ekki annað en lagt sitt af mörkum í átt að betri heimi. Hún fékk Svanhvíti Aðalsteinsdóttur úr utanríkisráðuneytinu í lið með sér og saman hafa þær nú hrint verkefninu Navia úr vör. Verkefnið miðar að því að aðstoða konur í Úganda við að koma undir sig fótunum með örlánum og fræðslu. Þá fengu þær einn af hundrað áhrifamestu mönnum heims að mati The Times, Youssou N‘Dour, til að vera rödd Afríku ásamt fimm söngkonum sem eru raddir Norðurlandanna í verkefninu.

-          Auglýsingaland

Auglýsingar spila stórt hlutverk í lífi okkar, þær eru allt í kringum okkur, sýnilegar eða ekki. Og hvort sem við viljum viðurkenna það eða ekki hafa þær áhrif á okkur. Þær hafa áhrif á skap okkar, geta fengið okkur til að bölva eða hlæja, og auk þess á hugmyndir okkar og jafnvel langanir. Eiga þær rétt á sér eða er þetta bara óþolandi áreiti, leið til að selja saklausum einstaklingum eitthvað sem þeir ekki þurfa?

Við fengum einnig álit bransans og hjá talsmanni neytenda á því hvað gerði auglýsingu góða, hver siðferðisleg mörk auglýsinga væru og ímynduðum okkur lífið án þeirra.

TÍSKA

-           SVARTUR, RAUÐUR OG FJÓLUBLÁR

Agnieszka Baranovska og Vera Pálsdóttir túlka strauma og stefnur haustsins í einstökum tískuþætti. Skoðaðu, lærðu og njóttu.

 

FEGURÐ

-          Snyrtivörur fyrir alla aldurshópa

Margar konur nota snyrtivörur frá ungaaldri og þar til þær verða háaldraðar. En það er misjafnt hvaða vörur og litir henta hverju aldursskeiði. Auðvitað er aldrei hægt að alhæfa, hver kona hefur sinn stíl og allt það, en það er yfirleitt mjög ósmekklegt að sjá fertuga konu klæða sig og farða eins og hún sé tvítug. Þar fyrir utan eru þarfir húðarinnar mismunandi á ólíkum æviskeiðum. Þess vegna tókum við saman vörur og góð ráð fyrir konur á öllum aldri.

-          Gauragangur

Allt sem venjulegur karlmaður þarf til að komast í gegnum daginn og halda útlitinu í lagi.

 

HANN / HÚN

-          10 atriði sem þú vissir ekki um konur

Konur eru lakari kokkar, hafa hærri sársaukaþröskuld og þola hita betur en karlar, segir Elma Lísa Gunnarsdóttir þegar hún ljóstrar upp leyndarmálum kvenna.

-          Hvað gerir lífið þess virði að lifa því?

Dóra Guðrún Guðmundsdóttir fylltist vonleysi eftir að hafa lært um hina ýmsu sálfræðilegu kvilla og hætti í sálfræði. Þar til hún kynntist jákvæðri sálfræði og fór að einbeita sér að hamingju, lífsánægju og því sem gefur lífinu tilgang.  Hún setur einnig fram sjálfspróf þar sem við getum metið hvort við erum nógu ánægð með lífið, eða hvort við þurfum að gera róttækar breytingar og finna út hvað það er sem gerir lífið þess virði að lifa því.

-          Stanslaust kynlíf í mánuð

Aðstæður, stellingar, stemning. Allt sem þú þarft að minna þig á ef þú ætlar að kveikja í ástarlostanum og fá maka þinn til að stunda daglega kynlíf með þér í heilan mánuð. Láttu það takast og þú munt uppskera, ekki bara dýpra og betra samband heldur einnig betri heilsu.

-          Viltu vita hvað hann er að hugsa?

Spurningar sem allir karlmenn spyrja sig áður en þeir ákveða að festa sig.

-          Partí

Útgáfutónleikar Dísu og spangaveisla Thelmu.

-          Horfðu til framtíðar

Stjörnuspáin hvetur Meyjuna til listrænnar tjáningar, Steingeitina til að fara í ferðalag og Hrútinn til að huga að makanum.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.