Útgáfa

ge0812

4 frábærir réttir fyrir 1000 krónur!

10.9.2008

Fljótlegir og ódýrir réttir fyrir fjóra undir þúsund krónum og brúðkaup Arnars Gauta finnur þú í næsta Gestgjafa!

Þá sýnir Gestgjafinn hvernig hægt er að halda upp á fimmtugsafmæli með stæl, en með litlum tilkostnaði og góðri skipulagningu.

Arnar Gauti Sverrisson, sem flestir landsmenn þekkja sem einn umsjónarmanna þáttanna Innlits–Útlits á Skjá Einum, og Aðalbjörg Einarsdóttir voru gefin saman í hjónaband fyrir skömmu og héldu glæsilega veislu á Korpúlfsstöðum.

Bragð af sumri – ber í baksturinn // Eftir metberjatíð hafa margir væntanlega sett eitthvað af afrakstri berjaferðarinnar í frysti. Girnilegir eftirréttir og kökur úr berjunum.

Sveppir svekkja engan // Margir hafa tínt sveppi að undarförnu enda afar vinsælt hráefni og kjörið tækifæri til að lækka matarreikninginn. Hvernig á að bera sig að og girnilegir réttir úr hinum ýmsu tegundum.

Magnaðar úr moldinni – Í tilefni af ári kartöflunnar útbjó Úlli nokkra girnilega rétti úr glænýjum kartöflum // Gómsætt án sykurs // Þrep fyrir þrep – Kartöfluklattar // Sunnudagskakan – Finnsk eplakaka // Holl og næringarmikil grænmetissúpu og ómótstæðilegt brauð sem er bakað í potti í ofninum.

Tryggðu þér eintak!

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ!

 

 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.