Útgáfa

sh0839

Ekkert snobb!

18.9.2008

Aftur í tímann – Klikkað karnival – Björk málar húsið svart – Óskarinn á leiðinni – Stórstjörnur styrkja SÁÁ – Ástin sprakk – Garðar Cortes í Detox hjá Jónínu Ben – Næst koma dýr – Töfrandi Tindersticks – Fluttu inn glæsimeyjar – Frjálslegt dekur – Engin lygavara – Stjörnuspeki – Ólétt í útrás – Feilspor og flott dress – Prinsessan af Útsvari – Blessað barnalaánið

Aníta Briem geislar af hamingjum enda komin með sjóðheitan leikstjóra upp á arminn. Turtildúfurnar eru nær óaðskiljanlegar og því þýddi ekki annað en að bjóða kærastanum til Íslands að hitta fjölskylduna.

Stórleikarinn Hilmir Snær er ekki snobbaður og er farinn á sjó.

Rithöfundurinn Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir gaf nýverið út ljóðabókina Loftnet klóra himin sem er til heiðurs Margréti Björgólfsdóttur, dóttur Björgólfs Guðmundssonar, sem lést af slysförum árið 1989, aðeins 33 ára að aldri.

Kristján tók fyrst þátt í Íslandsmóti fitness árið 2002 og síðan þá hefur hann tekið þátt í mörgum mótum og unnið fjölda titla. Hann er hvergi nærri hættur að keppa en hefur einnig gefið sér tíma til að setja á föt heilsusíðu í félagi við Björn Sigurbjörnsson.

Lára Ómarsdóttir veiddi sinn fyrsta lax í sumar, en sá er oftast nefndur maríulax. Venju samkvæmt beit hún uggann af maríulaxinum en ákvað að fara alla leið og kyngdi honum.

Eiður Smári fékk Jet Ski í afmælisgjöf frá frúnni.

Hvað er að frétta? Þau heimsóttu okkur í stofuna vikulega, sum í heilan áratug. Stjörnurnar hafa baukað ýmislegt síðan vinsælir sjónvarpsþættir þeirra runnu sitt skeið. Sumum þeirra hefur vegnað vel en aðrir hafa söðlað um og sagt skilið við sjónvarpsleik.

Stuðningsfulltrúinn Dagný og Júlíana verkefnisstjóri reyna að njóta lífsins til hins ýtrasta. Þær þj´lfa líkamann á hverjum degi og hafa gaman af tilverunni. Dagný og Júlíana þakka fyrir hvern dag og hafa að leiðarljósi að lifa einn dag í einu og vera góðar mæðgur.

Fyrir tæpum þrjátíu árum gjörbreyttist líf Ágúst Drafnar Guðmundsdóttur á svipstundu þegar hún lenti í mótorhjólaslysi. Hún hlaut mikinn mænuskaða en hefur þrátt fyrir það eignast tvö börn og aldrei gefið vonina upp á bátinn. Á föstudaginn nær landssöfnun á vegum Mænuskaðastofnunar Íslands hápunkti á Stöð 2.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.