Útgáfa
Skilnaðir í kreppunni
Tryllti konurnar – Sextugir tvíburar á Krít – KR-kroppur á lausu – Mikki skilinn – Fallegur dagur – Ballið búið – Bang Gang Barn – Stundvís strákur – Nældi í þjálfarann – Köflóttur kabarett – Burt með skutl og skyndibita – Heitar í heilsulind – Platpartí – Syngja um Séð og Heyrt – Ekki dauðir enn – Rokk í crocks – Söng fyrir bjór – Fór með Marinó í dótabúð – Glymjandi glæsileiki – Óhefðbundið og artí – Dýrðleg dýrakona – Stjörnuspeki – Daníel hárfagri – Rjúkandi heit rauðka – Stjörnutvífarar – Laglegi lögfræðingurinn – Kattliðugar og klassískar mæðgur
Það eru góðir tímar hjá Magnúsi Scheving, okkar ástsæla íþróttaálfi. Ekki nóg með að hugarfóstur hans, Latibær, sé að slá í gegn um allan heim, heldur er Magnús að verða afi. Sunna, elsta barn Magnúsar á von á barni um áramótin.
Níu leikmenn Keflavíkurliðsins í knattspyrnu eru annaðvhrot nýbakaðir feður eða verðandi feður. Sjúkraþjálfar liðsins vildi einnig taka þátt í partíinu og er því Kristján Guðmundsson, þjálfari liðsins, farinn að smala í næsta Keflavíkurlið. Vantar bara einn.
Litasprengja! Emmy-verðlaunaafhendingin var haldin í sextugasta sinn í Los Angeles síðastliðinn sunnudag. Konurnar skörtuðu að vanda sínu fegursta og óvenjumargar slógu í gegn í litríkum dressum.
Julia Roberts hefur marga fjöruna sopið þegar kemur að ástarmálum eins og gengur og gerist í Hollywood heiminum. Í dag er hún hins vegar harðgift kvikmyndatökumanninum Danny Moder og á með honum þrjú börn.
Rithöfundurinn Ármann fór í víking til Grænlands að kynna vestnorrænar vinjettur sem nýverið komu út. Þar var honum tekið eins og poppstjörnu og vakti hann mikinn áhuga fjölmiðla.

