Útgáfa
Nútímaheimili
Hönnun í Hafnarfirði
Út um allt land leynast vannýttir möguleikar í fyrirtækjum sem sérhæfa sig í ýmiss konar framleiðslu. Í tilefni af hundrað ára afmæli Hafnarfjarðar voru átta hönnuðir, bæði innlendir og erlendir, fengnir til að vinna með átta fyrirtækjum í Hafnarfirði.
Karólína Lárusdóttir
Karólína býr í Cambridge á Englandi og í Bryggjuhverfinu í Reykjavík. Hún hefur mundað pensilinn í tugi ára og verk eftir hana hanga á veggjum um víða veröld. Karólína tók vel á móti blaðamanni og ljósmyndara Húsa og híbýla á heimili sínu í Bryggjuhverfinu.
Fagurkerar á Laugateig
Hjónin Inga Bryndís og Birgir Örn eiga verslunina Heimili og hugmyndir IBK, ásamt vinahjónum sínum. Fyrir þremur árum keyptu þau sér gamalt hús í Laugardalnum sem var hrörlegt en lítið hafði verið gert fyrir það í hálfa öld. Inga Bryndís og Birgir litu á lúið hús sem spennandi áskorun.
Ungt par í bankageiranum
Klara Rún Kjartansdóttir og Ívar Örn Helgason eiga fallega hæð í einu rótgrónasta hverfi Kópavogs. Þau gerðu hana sjálf upp af mikilli natni og hlúðu að hverju smáatriði þannig að úr varð glæsilegt heimili.
Heima hjá Erlu Sólveigu iðnhönnuði
Stólar Erlu Sólveigar hafa selst í tugþúsundum eintaka víða um heim. Erla Sólveig opnaði heimili sitt fyrir lesendur Húsa og híbýla en það er stílhreint og með mikinn karakter.
Hitt og þetta // Spurt og svarað // Flott og fundið // Hús og híbýli langar í // Tíu hlutir // Innlit í London // Flott og fundið // Gamla innlitið // Sólveig Baldursdóttir myndhöggvari // Áskrifendatilboð // Uppáhaldshúsið
SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ

