Útgáfa
Auðvitað hef ég verið ástfangin
HEITT
Það heitasta í búðum - Í síðasta tölublaði birtum við yfirlit yfir helstu trend vetrarins. Nú fórum við í búðir og völdum fallegar flíkur út frá eftirfarandi tískustraumum: naumhyggju, sveitarómantík, köflóttu og litagleði.
Karlatíska - Leynistaðir, myndaþáttur eftir Hallgerði Hallgrímsdóttur og Kristin Magnússon þar sem haustfatnaðurinn fær að njóta sín. Auk þess sem Hallgerður tekur saman góð ráð fyrir herra sem vilja líta vel út.
MENNING
Á döfinni / Lestu / Hlustaðu / Hvað er ást? / Nauðhemlað á 260 / Tapasveisla / Gleðjum, þökkum og huggum
Heimsviðburður í Reykjavík - Alþjóðleg kvikmyndahátíð sem haldin er árlega hefur fest sig í sessi í höfuðborginni, enda hefur hróður hátíðarinnar borist um víða veröld. Hátíðin setur jafnan líflegan svip á borgina auk þess sem hún teygir anga sína út á land.
Leiðinlegasti maður allra tíma - Bloggið er ekki dautt en það er í hægum andaslitrum mengað af eitri hópsálarbloggs sem kenna má við Morgunblaðið. Einu sinni var voða töff að blogga en nú er það bara hallærislegt. Vitleysingarnir á blogginu láta þó ekkert aftra sér og böðlast áfram í tilgangslausri sjálfhverfu. Þórarinn Þórarinsson skrifar um blogg.
Bónorðinu hafnað á sviði - Jörundur Ragnarsson er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem misheppnaður og vandræðalegur læknanemi í Næturvaktinni. Í viðtali við Hallgerði Hallgrímsdóttur segir Jörundur frá mesta skandal lífsins þegar unnustan hafnaði bónorði hans á sviði.
Með útsýni yfir sjóinn - Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir fékk Sjónlistaverðlaunin árið 2006 fyrir húsgagnalínur sínar. Sjálf býr hún í húsi með gríðarlegri lofthæð þar sem hún blandar saman vönduðum vörum eftir þekkta hönnuði, IKEA-vörum og ódýrum notuðum hlutum. Kíkirinn á sér þó sinn stað í glugganum þar sem útsýnið er dásamlegt.
Skóli lífsins - Jóhanna Kristjónsdóttir hefur lært að hún er hvorki umburðarlynd gagnvart eigin göllum né annarra, að kaldhæðni getur verið nauðsynleg vörn gegn einmanaleika og sársauka, að hamingjutal er innantómt röfl og að taka sig ekki of hátíðlega, það tekst stundum.
"Auðvitað hef ég verið ástfangin" - Vigdís Finnbogadóttir lítur yfir farinn veg. Hún segir meðal annars frá því hvernig stríðsárin mótuðu hana, hvernig hún lenti óvart í brautryðjandastörfum og þegar þrýst var á hana, sem líður alltaf illa í kastljósi fjölmiðla, að fara í forsetaframboð. Einnig segir hún frá drauminum um Alþjóðatungumálamiðstöð á Íslandi. Þá ræðir hún sambandið við Ástríði dóttur sína, hvernig hún tekst á við einmanaleikann og mikilvægi einkalífsins í Séð og Heyrt-væddu samfélagi.
VETTVANGUR
Glósur / Alþjóðatungumálamiðstöð / Á rúntinum með taxa / Aldrei ein / Draumakenndar gyðjur
Þú átt að líta björtum augum á framtíð þína - „Þú ert alltof stressuð og ert búin að vera það í allan vetur. Stressið fer þér rosalega illa. Þú ert mjög tilfinningarík manneskja en tilfinningarnar þínar eru út og suður og búnar að vera það undanfarið. Þér finnst erfitt að ná að gera allt sem þú ætlar þér að gera. Þú vilt vera mjög skipulögð en hefur ekki náð því. Þú ert komin í vítahring. Það er mjög mikilvægt að þú komist út úr þessu. Núna!“ Þannig hefst fundur Diljár Ámundadóttur með Hrönn Friðriksdóttur spámiðli.
FEGURÐ
Haustlitirnir
HANN / HÚN
10 atriði sem þú vissir ekki um konur / Skelltu þér á stefnumót / Að byrja að deita á ný / Linda Pé fylgir draumum sínum / Horfðu til framtíðar

