Útgáfa

ge0813

KLÚBBABLAÐIÐ!

2.10.2008

Við erum með hugann við það í þessu tölublaði, t.d. hvernig við getum sparað í matarinnkaupum og hvernig er hægt að útbúa glæsilega og girnilega klúbbarétti án mikils tilkostnaðar. Við sýnum einnig leið til að baka ómótstæðilegt brauð á einfaldan hátt. Svo er núna tíðin til að taka slátur og eiga í frysti. Sláturgerðin, þrep fyrir þrep.

ge0813Að vanda heimsóttum við klúbba, einn sem samanstendur af konum og annan sem samanstendur af körlum og það er forvitnilegt að sjá mismunandi áherslur sem kynin leggja í samkomurnar. Eftir geysilegt laxveiðisumar eiga margir mikið magn af laxi. Úlfar setti saman nokkrar hugmyndir að því hvernig hægt er að nýta þetta eðalhráefni á hugmyndaríkan og skemmtilegan hátt.

Spurt og svarað / Mál og vog / Í uppáhaldi / Torgið / Molar/bix / Vínsíðurnar / Allrahanda

Árstíðir á markaðnum / Dominique fjallar um plómur og sveskjur.

Vinkonur í vinnunni / Konurnar hjá versluninni Heimahúsinu hittast reglulega utan vinnunnar, spjalla, skrafa og borða saman.

Brauð í boðið / Rósa Guðbjarts sýnir lesendum sívinsæla brauðrétti.

Lax, lax, lax og aftur lax / Eftir mikið laxveiðisumar er víða til mikið af þessu dýrindis hráefni og Úlfar er hér með nokkrar þrælfínar tillögur að því hvað er útbúa úr þessu lostæti.

Gómsætt án sykurs / Eitthvað ofboðslega fljótlegt, ómótstæðilega gott og ótrúlega hollt í klúbbinn er viðfangsefni Hönnu Arnarsdóttur að þessu sinni.

Tapas – fljótlegt og einfalt í klúbbinn / Tapas er skemmtileg hefð sem komin er frá Spáni og fellur svo vel að klúbbahefðinni okkar.

Sláturgerð og haustmatur / Við heimsóttum fjörugan klúbb kvenna á öllum aldri sem viðheldur hefðinni að taka slátur og prófar sig áfram með bragðtegundir.

Mexíkóskir mánudagar / Hópur leiklistarnema kemur saman á mánudögum og borðar mexíkóskan mat. Við fengum að fylgjast með einu klúbbkvöldi hjá þeim.

Hlýir haustlitir heima við / Gerður fann ýmislegt skemmtilegt til að skreyta heimilið og borðið með þegar klúbburinn kemur í heimsókn.

Brauðið góða / Brauðbakstur færist í vöxt núna þar sem það er ein leiðin til að spara. Við sýnum hér leið til að baka ómótstæðilegt brauð á einfaldan hátt.

Heiðursmannaklúbburinn Heiðrún / Nokkrir karlar koma reglulega saman, borða góðan mat og drekka góð vín. Við fengum að fylgjast með einu kvöldi hjá heiðursmönnunum í matar- og vínklúbbnum Heiðrúnu.

Grænmetisrétturinn / Hér sýnir Sirrý hvernig tilvalið er að búa til ómótstæðilegt lasagna með graskeri og sætum kartöflum.

Sunnudagskakan / Í þetta sinn eru það kanilsnúðar sem Sirrý bakaði sem sunnudagsköku.

Búðaráp / Í góðri veislu er nauðsynlegt að eiga góða bakka og föt undir snittur og aðra smárétti, Gerður fór á stúfana og fann slíkan varning.

Eitt vín – einn réttur / Frosti Baldvinsson á Humarhúsinu og Loire-vín eru umfjöllunarefni Dominique að þessu sinni.

Veitingahúsarýni / Úlfar og Kjartan heimsóttu veitingahúsið Ó Restaurant á Hótel Óðinsvéum.

 

 SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ!



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.