Útgáfa

sh0842

Mergur málsins

16.10.2008

Dægurlagadrottningin Birgitta Haukdal er ein ástsælasta söngkona landsins og hefur glatt landann með íðilfagurri rödd sinni undanfarinn áratug. Hennar heittelskaði, Benedikt Einarsson, er af einni valdamestu ætt sem Ísland hefur af sér alið svo að athöfnin í Dómkirkjunni var sannkallað stjörnubrúðkaup

Rithöfundurinn og fagurkerinn Ármann Reynisson veit hvað það er að tapa aleigunni á verðbréfum. Hann missti allt þegar verðbréfafyrirtæki hans, Ávöxtun, fór í þrot 1988. Hann endaði í fangelsi en náði sér á strik aftur og býðst nú til að aðstoða þá sem eru í sömu sporum og hann áður.

Breska blaðið Daily Mail birti mikla grein um líf íslensku auðjöfranna og lífsstíl þeirra í fallandi heimi. Blaðamaðurinn Tom Harper tók mynd á símann sinn, sem fer eins og eldur í sinu um netheima og sýnir Jón Ásgeir og vini hans fá sér 17 þúsund króna hvítvín.

Sigurður Hafsteinn, betur þekktur sem Diddi strippari, gerði garðinn frægan í Grindavík fyrir rúmlega tíu árum þegar hann, ásamt tveimur vinum sínum, stofnaði hinn geysivinsæla stripparahóp Pörupiltar.

Queen Raquela er kynskiptingur sem dreymir um betra líf og um hana nú hefur Ólafur de Fleur Jóhannesson gert heila bíómynd. Þar fer strákastelpan Vala Grand með stórt hlutverk og slær í gegn, eins og hennar er von og vísa.

Kling & Bang hefur verið að endurreisa hinn sögufræga bar Sirkus, í London, og er sá gjörningur partur af einni stærstu listakaupstefnum heimsins, Frieze Art Fair. Forsetafrúin okkar, Dorrit Moussaieff, hefur verið Kling & Bang innan handar og líklegt að sýning á íslenskri list verði haldin í íbúð hennar í London.

Flautað til hálfleiks! „Það eru meiri líkur á því að maður vinni í lottóinu en að þetta gerist tvisvar,“ segir dómarinn, Jóhann Guðmundsson, sem lenti í einstæðri lífsreynslu og það örugglega á heimsvísu.

„Ég hef tekið upp þann sið að fjárfesta í svo sem einni mynd á ári og nú pantaði ég mynd hjá Gylfa Ægissyni og setti sem skilyrði að á myndinni væru Bítlarnir og Tinni í íslensku landslagi,“ segir Doktor Gunni sem gaf sjálfum sér myndina í afmælisgjöf þegar hann varð 43 ára.

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.