Útgáfa
BAÐBLAÐIÐ!
24 BAÐHERBERGI - BAÐBLAÐIÐStór, lítil, stílhrein og litrík ... allt eru þetta lýsingarorð sem eiga fullkomlega við þau fjölmörgu glæsilegu baðherbergi sem Hús og híbýli skoðaði nú á dögunum. Þá lumar Hús og híbýli einnig á ýmsum ráðum og hugmyndum sem koma að góðum notum þegar baðherbergið er annars vegar.
Grúví viðbygging & vel heppnuð innanhússhönnun
Teiknistofan Go-Form hefur upp á síðkastið vakið mikla athygli fyrir glæsilega innanhússhönnun. Það eru þau Oddgeir Þórðarson og Guðrún Margrét Ólafsdóttir sem standa á bak við Teiknistofuna Go-Form en Hús og híbýli hitti Oddgeir í húsi í Garðabæ sem tvíeykið tók að sér að endurhanna fyrir um þremur árum.
Heimili við Hafnarfjarðarhraun
Bryndís Gísladóttir og Gísli Aðalsteinsson búa í fallegu einbýlishúsi í Vallahverfi Hafnarfjarðar. Þau fengu húsið sitt afhent fokhelt fyrir nokkrum árum og fengu Eon Arkitekta ehf til liðs við sig til að hanna húsið að innan.
Thelermont Hupton á uppleið
Thelermont Hupton er ungt, breskt og ferskt hönnunarteymi á hraðri uppleið. Þau skapa frumlega nytjahluti sem lífga upp á hvaða heimili sem er og taka sig ekki of alvarlega.
Háskólinn í Öskjuhlíð opnaður næsta haust
Við rætur Öskjuhlíðar rís nú nýbygging Háskólans í Reykjavík. Byggingin er glæsileg og fellur vel að umhverfinu en hönnuðir hennar eru Arkís og Teiknistofa Hennings Larsen

