Útgáfa

sh0844

Útrásavíkingurinn ógurlegi!

23.10.2008

Jóhanna verður Madonna!
Í tilefni af fimmtugsafmæli poppdrottningarinnar Madonnu hefur Broadway sett á laggirnar fjöruga söngsýningu með söngkonunni Jóhönnu Guðrúnu í aðalhlutverki.

Flugdólgur!
Magnús Ármann hefur, þrátt fyrir ungan aldur, farið mikinn í íslensku sem erlendu atvinnulífi og verið titlaður yngsti milljarðamæringur landsins. Þrátt fyrir að Magnús sé þekktur fyrir að vera brosmildur og ljúfur drengur var hann, samkvæmt heimildum Séð og Heyrt, áreittur um borð í vél Icelandair.

Faðir Maístjörnunnar!
Þeir voru margir sem vildu heiðra Jón Ásgeirsson á áttræðisafmæli hans, enda er hann elskaður og dáður af þjóðinni allri þótt ekki væri nema vegna Maístjörnunnar sem allir kunna.

Læknisdætur kátar í kreppunni!
Helga og Marta eru þaulreyndar í tískubransanum en þær reka allar verslanir móðurfyrirtækisins Bestseller á Íslandi. Meðal þeirra eru Vero Moda, Jack and Jones, Vila, Name it og nýjasta viðbótin, Selected.

Kreppukirkja!
Það fer ekki mikið fyrir veraldlegum gæðum þegar Ástjarnarkirkja í Hafnarfirði er skoðuð að utan. Hún minnir á skúr með krossi. Þegar inn er komið er hins vegar næg hlýja og kærleikur til þess að sannfæra mann um að þetta sé í raun kirkja. Og það er það sem máli skiptir.

Fúsi á föstu!
Sigfús þykir hvers manns hugljúfi og heillar flestalla sem hann hittir. Það er því ekki að undra að gengið sé á eftir honum með grasið í skónum. Einhver hnáta hefur nú hreppt hnossið og er öfunduð af mörgum.

Vatnskóngur í vanda!
Athafnamaðurinn Jón Ólafsson hefur verið að koma sér fyrir í glæsilegu einbýlishúsi við Baldursgötu sem hann keypti af erfingjum Sigurðar Nordal. Jón var þó ekki lengi í paradís því hann var ekki fyrr búinn að bera inn búslóð sína en brotist var inn í húsið og óttaðist Jón um tíma um byssusafn sitt sem þar var á meðal.

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOР



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.