Útgáfa
Drakúla greifi var til!
Drakúla greifi var til!
Sögur um blóðsuguna Drakúla eru ekki eintómar þjóðsögur. Fyrir 600 árum var uppi fursti að nafni Vlad Tepes í Transylvaníu sem kunnur var fyrir grimmd, einkum í garð handsamaðra fanga. Aftökuaðferð hans, steglingin, þótti svo viðurstyggileg að sögur um furstann lifðu margar aldir og eru nú orðnar að sögum um hina ódauðlegu blóðsugu.
Kynlíf og völd færðu þau saman
Katrín mikla, keisaraynja Rússlands, og Potemkin greifi stýrðu Rússlandi úr svefnherberginu. Er Potemkin dó varð Katrín frávita af sorg.
Skyndimyndir úr sögunni
„Albúmið“ heitir nýr efnisþáttur í Sögunni allri. Þar sýnum við skyndimyndir af sögulegum persónum, s.s. bófadrottningunni Belle Starr, japanskri galdradrottningu, Charlotte Corday og feitasta kóngi Bretlands.
Hún sameinaði Norðurlönd 1397
Barnæska hennar var ekki hamingjurík. Á fullorðinsárum missti hún alla fjölskyldu sína og öflugir andstæðingar börðust gegn henni. En Margrét drottning lét aldrei bilbug á sér finna.
Sjóorrustan við Tsushima 1905
Aðeins örfáum áratugum eftir að Japan komst fyrst í kynni við Vesturlönd gersigruðu Japanar öflugan herskipaflota Rússlands í einni frægustu sjóorrustu sögunnar.
Leið Kennedys á toppinn
Áður en John F. Kennedy var kosinn forseti BNA árið 1960 hafði fjölskylda hans unnið ýmsa sigra í lífsbaráttunni. En harmleikir og sorgir setja líka svip sinn á sögu ættarinnar.

