Útgáfa
Martraðir Maríu Ellingsen
HEITT
Ævintýralegir skór
Dásamlegir litir og sérstök form.
15 nauðsynjar fyrir veturinn
Á tímum sem þessum er nauðsynlegt að velja vel í hvað við eyðum peningunum okkar. Eyddu í klassískan fatnað sem endist lengur en bara út þetta tímabil eða flíkur sem þú getur notað á marga mismunandi vegu. Þú getur gert það og að auki fylgt helstu straumum og stefnum vetrarins.
Steldu stílnum
Oft er auðveldara og ódýrara en þú heldur að stela stílnum. Þú þarft bara að vita að hverju þú ert að leita og hafa augun opin. Vera Pálsdóttir fann flíkur fyrir fjórar ólíkar týpur út frá trendum vetrarins. Hvort sem þú ert rómantísk, athafnasöm, vinnualki eða dama ættir þú að finna eitthvað við þitt hæfi.
MENNING
Á döfinni
Lyftu þér upp, gerðu eitthvað skemmtilegt. Þú gætir farið að sjá The Music of ABBA, ljósmyndasýninguna Þjóðin, landið og lýðveldið í Þjóðminjasafninu, Fólkið í blokkinni eða The Amazing Truth About Queen Raquela. Þú átt það skilið.
Lestu
Þórarinn Þórarinsson skrifar um bækur og spyr Bergstein Sigurðsson blaðamann út í hvað hann sé að lesa þessa dagana.
Innlit til Þorfinns og Ástrósar
Í miðbæ Reykjavíkur gægðumst við inn til Þorfinns Ómarssonar og Ástrósar Gunnarsdóttur og komumst að því að þau eru miklir heimsborgarar og ferðalangar með áhuga á listum og vínum. Skemmtilegt.
Íslenskt, já takk!
Nú viljum við ekkert nema kjarngóðan íslenskan mat, enda ætla sjómenn landsins að sjá okkur fyrir lúxusfiski næstu vikurnar. Stefán Úlfarsson, kokkur á Þremur Frökkum, tók saman uppskrift að saltfiski með rúsínum og furuhnetum fyrir fjóra. Gott með kartöflugratíni.
Þroskasaga morðingja
Þroskasaga morðingja sem fékk uppreisn æru sinnar eftir ítarlega endurskoðun á hlutverki sínu. Og hefur fyrir vikið aldrei verið betri.
Lay Low dreymir um Dolly Parton
Hún heitir Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir og var frekjudós sem ráðskaðist með móður sína í æsku. Nú er hún þekkt sem Lay Low og er einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar. Hér segir hún frá genginu sem hún stofnaði á unglingsárunum, pabba sínum sem er enn hálfgerð gelgja og undarlegustu jólum lífsins. Og svo mörgu öðru. Tékk it.
Skuggadans Gunnlaugs
Ásta Andrésdóttir hitti Gunnlaug Egilsson sem fékk, 23 ára gamall, æviráðningu sem dansari við Konunglega sænska ballettinn og er nú, sex árum síðar, líka orðinn virtur danshöfundur. Hann segir frá því af hverju hann þakti sviðið beinum fyrir Ossuarium, vandanum við að leikstýra kærustunni og stundunum sem fylla hann stolti, eins og þegar mamma og pabbi sáu hann fyrst dansa á Stóra sviðinu með Sænska ballettinum.
Gafst upp fyrir guði
María Ellingsen segir frá tímamótunum sem hún stendur á, tvöfalda lífinu sem hún lifði í Hollywood, ferðalaginu um innri og ytri heima, hlutverkinu sem heltók hana þannig að hún þurfti að lokum aðstoð miðils, baráttunni við að vera í núinu og þagga niður í þessu suði sem ómar eilíft í höfði hennar, rússíbanareiðinni í gegnum erfið veikindi frumburðarins og hvernig hún hefur lagað líf sitt að veikindunum.
VETTVANGUR
Glósur
Er Facebook hin nýja þjóðarsál? Við tókum saman prófíl status nokkurra Íslendinga á síðustu vikum.
Hin falda fötlun
„Ég skammaðist mín fyrir heyrnarleysið,“ segir Soffía Jakobsdóttir leikkona sem lifði áratugum saman með skerta heyrn án þess að grípa til úrræða. Þegar hún sá fram á að missa vinnuna vegna þessa fékk hún sér loks heyrnartæki og nýlega fór hún í aðgerð sem færði henni heyrnina á ný og breytti lífi hennar til hins betra.
FRUMKRAFTURINN BEISLAÐUR
Kraftmikið frumskógarbarn kemur til byggða og verður að dannaðri borgarpíu. Tískuþáttur eftir Veru Pálsdóttur.
FEGURÐ
Rauðar varir
Tvennt er nauðsynlegt þegar kemur að tísku og fegurð; að hafa húmor og vera ungur í anda. Og rauði varaliturinn er alltaf sígildur.
Allt um maskara
Hvaða maskarar lengja, þykkja, sveigja eða beygja? Hverjir gefa djúpan svartan lit og dramatíska umgjörð og hverjir eru bestir fyrir náttúrulegt útlit? Hvað segja notendur, venjulegar konur, eins og ég og þú, um þessa maskara? Lestu þér til áður en þú splæsir í nýjan.
Ilmur við allra hæfi
Kýstu höfugan og seiðandi ilm eða létta ávaxtaangan? Allir bestu ilmir haustsins í veglegri úttekt.
HANN / HÚN
10 atriði sem þú vissir ekki um konur
Bryndís Ásmundsdóttir leikkona gerir lukku um þessar mundir í Íslensku óperunni í verkinu Janis 27. Hún segir konur keyra viljandi illa því að þær vilji losna undan því.
Fantasíur
Leyfðu þér að láta þig dreyma um aðra menn. Láttu jafnvel slag standa og gríptu tækifærin þegar þau gerast, skapaðu þau jafnvel sjálf. Vittu til, það mun aðeins hafa jákvæð áhrif á samband þitt við makann. Enda er það jafnóraunhæft og það er óheilbrigt að ætlast til þess að fólk hugsi aðeins um hvort annað í sextíu ár. Varaðu þig þó á því að þetta á aðeins við um ímyndaða atburði sem gerast í huga þínum og hvergi annars staðar. Ef þú framkvæmir þá einnig í raunveruleikanum geta afleiðingarnar aftur á móti orðið mun verri.
Vaknaðu snemma
Áttu erfitt með að vakna? Greyið. Við skulum hjálpa þér. Lena Viderø sem vaknar alltaf fyrir allar aldir tók saman góð ráð til þess að hjálpa þér fram úr rúminu á morgnana. Enda engin skynsemi í því að mæta of seint til vinnu þegar það stefnir í að þúsundir manna verði í atvinnuleit á næstunni.
Stjörnuspá
Hinn seiðandi Sporðdreki hefur aldrei haft meira sjálfstraust. Aðrir munu fylgja forystu hans og því er þetta rétti tíminn fyrir hann til að kynna hugmyndir sínar og styrkja stöðuna. Steingeitin verður áfram á rómantískum nótum en vinnan er í fyrirrúmi hjá Tvíburanum næstu vikurnar.

