Útgáfa

ge0814

Villibráðarblaðið!

23.10.2008

Tími villibráðarmáltíðanna er runninn upp. Veiðimenn þeysast um holt og heiðar, bíða eftir bráðinni í skurðum, blautir og hraktir en láta sér fátt um finnast því ánægjan við að ná bráðinni er öllu öðru yfirsterkari. Þökk sé ævintýraþrá þeirra getum við hin notið þess að elda og snæða dýrðlegar villibráðarmáltíðir. Okkur finnst flestum íslensk villibráð bragðbetri en sú erlenda en þar getur þjóðarrembingurinn haft einhver áhrif. Í öllu falli er umhverfið sem villibráðin hefst við í náttúrulega hreint og gott.

Árstíðin á markaðnum // Dominique fjallar um papaya-ávöxtinn.

Veiðimenn og -kona! // Þrír skotveiðimenn og áhugamenn um matargerð gefa uppskriftir að uppáhaldsvillibráðarréttunum sínum.

Villibráðarréttir // Villti kokkurinn Úlfar sýnir lesendum hvernig á að fara með villibráðina.

Meðlætið með villibráðinni // Sigríður og Guðrún Hrund settu saman glæsilegan þátt með hugmyndum að meðlætisréttum með villibráðinni. Sumir þeirra ganga jafnvel einir og sér.

Gómsætt án sykurs // Hanna lagði höfuðið í bleyti og hannaði nokkra ómótstæðilega meðlætisrétti.

Veiðihnífar // Vandaðir veiðihnífar eru ómissandi í hverja veiðiferð og nauðsynlegt hverjum veiðimanni að hafa góðan hníf við höndina.

Hitabrúsar // Veiðimenn vita manna best hversu miklu máli það skiptir að hafa góðan hitabrúsa með í veiðiferðum. Við fórum á stúfana og gerðum okkar eigin könnun á gæðum brúsanna sem í boði eru í verslunum.

Grænmetisrétturinn // Sirrý sýnir hvernig útbúa á hnetusteik þar sem uppstaðan er ætiþistlar.

Sunnudagskakan // Ómótstæðileg hunangskryddkaka er viðfangsefni Sirrýjar í þessu tölublaði.

Veiðimannanesti // Það er fátt eins mikilvægt á veiðum og að hafa með sér gott nesti og hvað er betra en að hafa með sér kræsingar úr villibráð sem maður hefur veitt og eldað sjálfur?

Skref fyrir skref – Heitreyking // Úlfar sýnir lesendum hvernig heitreykja á gæsabringur.

Komd‘í reyk // Guðrún Vaka kynnti sér reykofna til heimabrúks og segir frá galdrinum á bak við vel heppnaða reykingu. Það er auðveldara að reykja matvæli en margir halda.

Búðaráp // Græjurnar í veiðiferðina eru umfjöllunarefni Gerðar að þessu sinni.

Eitt vín – einn réttur // Sturla Birgisson eldar dýrindis nautahryggvöðva sem smellpassar með Búrgúndar-víni.

Vínsíðurnar // Dominique og Eymar skoða m.a. ódýr vín með villibráð.

Veitingahúsarýni // Úlfar og Kjartan heimsóttu saman nokkra vinsæla hamborgarastaði og gáfu þeim einkunn.

 

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.