Útgáfa
Skuldasúpa, ást og hugmyndir
Sitja í skuldasúpunni
Þau Arnar Gauti og Þórunn hafa séð um þættina Innlit/Útlit á Skjá Einum en þátturinn var og er gríðarlega vinsæll. Þórunn er nú hætt í þáttunum. Hús beggja eru nú boðin upp á nauðungaruppboði.
Takmarkalaus ást
Jónas Hagan,forstjóri Iceland Refund og Euro Refund Group, gekk að eiga Jóhönnu Sævarsdóttur ljósmyndara í Hallgrímskirkju á dögunum. Brúðhjónin létu hvorki aldur, landamæri né kreppu stöðva sig í að staðfesta ást sína.
Hrært í hugmyndum
Listahjónin Sigurður Pálsson og Kristín Jóhannesdóttir lögðust á eitt til að skapa ógleymanlega leiksýningu sem frumsýnd var í Þjóðleikhúsinu. Sigurður samdi leikritið en Kristín sá um leikstjórnina og útkoman er eftir því – frábær. Sýnt er í Kassanum við Lindargötu.
Búin að skreyta jólatréð
Spákonan og stuðpinninn Sigríður lætur ekkert kreppuhjal draga sig niður. Hún gaf á dögunum út ný spáspil og sjálfshjálpardisk og er meira að segja búin að skreyta jólatréð heima hjá sér.
Ekki nógu ríkur til að hjálpa
Halim Al hefur það notalegt þessa dagana. Hann á verksmiðju í Istanbúl sem framleiðir gallabuxur fyrir Disney og tískuboli af öllu tagi. Hann telur sig samt ekki til auðmanna og segist ekki vera nógu ríkur til að hjálpa íslensku þjóðinni.
Stjörnuspeki
„Charlize Theron er frábær leikkona – gullfalleg, kynþokkafull, sterk og getur leikið svo marga karaktera. Hún getur gert allt vel, hvort sem um er að ræða drama eða gamanmyndir, en hún kann ekki á klukku!“
Leikarinn Will Smith komst að því að leikkonan fallega kemur yfirleitt of seint þegar þau unnu saman við myndina Hancock.
Greifinn af Remax
Sölumennska er Högna K. Þorkelssyni í blóð borin. Ungur að árum seldi hann körfuboltamyndir og stórgræddi. Í dag er hann einn fremsti sölumaður fasteigna hér á landi. Og þrátt fyrir kreppuna hefur hann nóg að gera.
Flott á fimmtugsaldri
„Þegar maður er orðinn aðeins eldri og hefur alltaf verið í ágætisformi þá vill maður náttúrlega komast aftur í gott form sem fyrst. Lóló er mjög vel menntaður íþróttakennari og veit að þetta tekur allt sinn tíma. Þú gengur með barn í 9 mánuði og þarft þá að gefa þér alveg 9 mánuði í að ná aftur fyrri vexti,“ segir Unnur en hún er dugleg að æfa í salnum auk þess sem hún er mikill aðdáandi Pilates.
Sjóðheitt
Sjóðheitt! „Það var mjög vel tekið í þetta, bæði hjá stelpum og strákum,“ segir Kristbjörg, Hot and Sweet-pía. Þær stöllur hafa síðastliðnar helgar boðið upp á Hot and Sweet-skot á börum bæjarins með línunni: Mér finnst þú vera „hot and sweet“ og mig langar að gefa þér skot – hressum Íslendingum til mikillar gleði, enda eru fríar veigar aldrei óvinsælar.
Haltu kjafti, herra Brown
Leikarinn Davíð Guðbrandsson, sem slegið hefur rækilega í gegn í Svörtum englum, hefur fengið nóg af aðgerðaleysi íslenskra stjórnvalda í garð Breta. Hann vill að Íslendingar hætti að lúffa og byrji á því að bíta á móti.

