Útgáfa
Það besta í hönnun árið 2008
Hönnun 2008 // Íslenskir hönnuðir og kollegar þeirra erlendis hafa aldrei verið jafniðnir við störf sín og síðustu ár og spretta sífellt upp frábærir hlutir sem bera vott um hugvit þeirra og útsjónarsemi. Við tókum nokkra þeirra tali og litum á það sem stendur upp úr á árinu.
Listræn fjölskylda í Vesturbænum // Unnur Knudsen textílhönnuður og Arnaldur Halldórsson ljósmyndari eiga sérlega fallegt þriggja hæða hús í gamla Vesturbænum sem þau hafa gert upp af miklum myndugleik.
Eldstæði án vandkvæða // Fyrirferðarlítil og einföld etanóleldstæði gera það að verkum að opinn eldur í stofunni er raunhæfur möguleiki fyrir flesta.
Lífrænt á Lynghaga // Tinna Pétursdóttir, markaðasstjóri hjá Bio-vörum, og Ingvi Þór vefforritari búa í fallegu Sigvaldahúsi með útsýni út á sjóinn.
Gramsað í Góða hirðinum // Á ósköp venjulegum fimmtudegi áttu blaðamaður og ljósmyndari leið í Góða hirðinn. Þar var að venju margt um manninn og margt um dýrgripi.
Danssýning í stofunni // Ólöf Ingólfsdóttir, dansari og danshöfundur, fékk Grímuverðlaunin í ár fyrir dansverkið Heimilisdansar sem sýnt var í stofunni heima hjá henni.
Öllu hent í góðærinu // Í Antikbúðinni við Strandgötuna í Hafnarfirði ráða antik- og listmunasalarnir Jónas Ragnar Halldórsson og Sigurlaug G. Gunnarsdóttir ríkjum.
Hitt + þetta / Spurt og svarað / Flott & fundið / 10 hlutir / Okkur langar í ... / Áskrifendatilboð / Hönnunarsagan / Uppáhaldshúsið

