Útgáfa

sh0847

Nú er það svart!

14.11.2008

Hús nýju bankastjóranna
Búið er að skipta út toppliðinu í því sem eftir er af íslenska bankakerfinu. Nýju bankastjórarnir gefa hinum gömlu þó lítið eftir þegar kemur að húsunum sem þeir búa í.

Meistaramamma í Mývatnssveit
Eyrún Björnsdóttir kom heim eftir lokahóf Mótorhjóla- og snjósleðasambands Íslands með fjölmarga bikara sem börnin hennar höfðu unnið til. Stofan í Mývatnssveit er því orðinn fallega skreytt dýrindissilfri.

Sjóðheit á Hilton
Það var margt um manninn á Hilton hótelinu þegar Yesmine Olsson kynnti nýjustu matreiðslubókina sína, Framandi og freistandi 2. Meðal gesta voru Lárus Welding, fyrrum bankastjóri Glitnis, og Ágústa, eiginkona hans, sem er góð vinkona Yesmine.

Guðleg gleði
Indverjar á Íslandi héldu á dögunum upp á á Deepawali, eina helstu hátíð þjóðar sinnar. Gleðin var haldin í samvinnu Indlandsvinafélagsins og sendiráðs Indlands á Íslandi sem nýlega var opnað og er til húsa við Skúlagötu í Reykjavík.

Hárgreifinn Böðvar Þór Eggertsson (40) fagnaði fertugsafmælinu með stæl:
Flottast í heimi! „Ég var að opna 450 fermetra Paul Mitchell-umboð í Hátúninu með glerbúr í miðju rýminu þar sem ég er með hárgreiðslustofu og ég ákvað að slá tvær flugur í einu höggi og halda í leiðinni upp á fertugsafmælið. Þetta var að sjálfsögðu geggjað partí og troðfullt af fólki,“ segir Böddi um veisluna góðu en um 300 manns lögðu leið sína í Hátúnið til að fagna með afmælisbarninu.

Nýtt líf!
Grétar Sigurðsson hefur í kjölfar fangelsisvistar snúið við blaðinu og aðstoðar í dag fólk við að öðlast heilbrigðari líkama og líf. Hann segir marga berjast við að þyngja sig og talar um vanmetið vandamál.

Gott að vera góð norn
Gleðiseyður! „Við komum allar úr sitthvorri áttinni en það er kærleikurinn sem tengir okkur saman,“ segir Sirrý spákona sem rís undir nafni sem norn enda alltaf klædd sem slík; frá morgni til kvölds og jafnvel um nætur líka.

Samskot 
 „Herraklúbburinn Fancy, sem er góðgerðasamtök og hefur verið við lýði í ein þrjú ár, hefur undanfarið safnað fé til styrktar Björgólfsfeðgum,“ segir rappgoðið Erpur sem ásamt félögum sínum vill ekki horfa upp á samborgara sína þjást. „Við erum allir rosa góðir gaurar og viljum gjarnan sinna samfélagslegum skyldum. Erum nú búnir að safna fé fyrir Björgólfsfeðga, gengum hús úr húsi, því þeir feðgar þurfa á mikilli hjálp að halda. Við viljum fyrir alla muni að þeir nái að halda einkaþotu sinni, það yrði sárt að horfa upp á hana hverfa úr eigu þeirra.“

HEYRT

 ... að Tolli hafi fengið sér súpu og brauð á Kaffivagninum úti á Granda.

 ... að súperbakarinn Jói Fel. hafi gengið upp Ingólfsstrætið með kaffibolla á meðan alþýðan mótmælti á Austurvelli á laugardaginn.

... að Auðunn Blöndal og tökulið hans úr þáttunum Atvinnumennirnir okkar muni eyða vikunni með Loga Geirssyni í Þýskalandi.

... að stjörnublaðakonan Kolbrún Bergþórsdóttir hafi sótt innblástur í föðurnafn sitt þegar hún keypti sína fyrstu íbúð á Bergþórugötu í fyrra.

... að Anna Lilja Johansen hafi klæðst forláta Burrberry-kápu og angað unaðslega þegar hún mætti á James Bond-frumsýninguna með lögfræðingi sínum, Villa Vill.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.