Útgáfa

nl0814

Hollywoodkossar Anitu Briem

14.11.2008

HEITT

·        Ekki láta kuldabola bíta þig

o    Við búum ekki við þann munað að geta spókað okkur í kjól allan ársins hring. Þegar kólna tekur í veðri er nauðsynlegt að klæðast hlýjum vetrarfatnaði. Það er þó óþarfi að missa kúlið.

·         Frjálsleg í anda

o    Bóhemstíllinn: frjálslegur, blómlegur og fyrst og fremst þægilegur.

·         Kvenleikinn í fyrirrúmi

o    Daman: ávallt kvenleg, þokkafull og glæsileg.

·         Hálsklútar fyrir hefðardömur

o   Hálsklúta er hægt að fá í endalausum útgáfum og nota þá á óteljandi vegu.

 

MENNING

·         Á döfinni

o   Litríkur listamannahópur í Listasafni Reykjavíkur sýnir fjölbreytt verk um sjálfsmynd og tísku, Listasafnið á Akureyri setur kristna trú í nýtt samhengi en Björgvin Halldórsson slær upp góðu upphitunarpartíi fyrir jólin í Laugardalshöllinni.

·         Lestu

o   Þórarinn Þórarinsson skrifar um góðar bækur og tekur púlsinn á bókmenntaunnendum.

·         Hlustaðu

o   Emil í Kattholti var fyrsta platan sem breytti lífi Hafdísar Huldar sem gerir það gott með nýrri smáskífu. Heiðar í Botnleðju er kominn í nýtt band, The Viking Gigant Show. Og Nýtt Líf syngur með Turninum, nýju plötunni frá Ný dönsk. 

·         Fréttakona í dúkkuhúsi

o   María Sigrún Hilmarsdóttir er með hvert stórmálið á fætur öðru í sjónvarpsfréttunum. Sjálf býr hún í pínulitlu húsi í Þingholtunum þar sem hvítir fuglar skreyta gluggana og blómakrans  prýðir vegg.

·         Rauðrófusalat með kjúklinga-cannelloni

o   Stjörnukokkurinn Steinn Óskar Sigurðsson er nú farinn að starfa á Grænum kosti og leiðir okkur í allan sannleikann um það hvernig eigi að gera hollasta salat bæjarins.

·         Hættiði þessu væli

o   Þórarinn Þórarinsson hvetur Íslendinga til að nýta langþráð tækifæri til þess að núllstilla vitleysuna sem hefur einkennt samfélagið undanfarin ár og reisa nýtt og betra samfélag, í stað þess að gráta það að heimurinn, eins og við þekktum hann, hafi hrunið, það hafi hvort eð er verið eins óhjákvæmilegt og fall Rómar.

·         Getur þú lesið í gegnum línurnar?

o   „„Ég ætla að fá orku og frelsi fyrir þúsundkall.“ Hvað er þarna í gangi? Hefurðu hugsað út í það hvers vegna gosdrykkur heitir ekki SYKURLEÐJA? Hvers vegna heitir fyrirframgreitt símkort FRELSI? Verður maður frjálsari við að tala í síma?“

·         Æ lof Færeyjar

o   Frændþjóð okkar, Færeyingar, hafa margt til brunns að bera. Við tókum saman áhugaverðar staðreyndir, bestu tónlistina, hönnunina, skemmtilegustu frasana og fallegustu staðina.

 

VIÐTÖL 

·         HEFÐI GETAÐ ORÐIÐ FJÖLDAMORÐINGI

o   Dr. Gunni er sjálfskipaður talsmaður neytenda, blaðamaður, tónlistarmaður, þjóðfélagsrýnir og svo margt fleira. Í grunnskóla var hann aftur á móti veggjalús sem þagði nema yrt væri á hann. Hann segir frá því þegar hann fékk signa ýsu frá rosknum amfetamín-díler í næstu íbúð, listaverkunum sem hann safnar en síðast keypti hann mynd sem birtist í Séð og Heyrt fyrir nokkrum vikum og bestu stundunum með fjölskyldunni.

·         HEIMURINN HRUNDI ÞEGAR PABBI DÓ

o   Þrátt fyrir ungan aldur stimplaði Óttar Martin Norðfjörð sig rækilega inn fyrir síðustu jól þegar hann átti sæti á lista yfir mest seldu ævisögurnar og mest seldu skáldsögurnar. Og nú fyrir jólin koma út þrjár bækur eftir hann, auk þess sem ein liggur tilbúin og bíður vorsins.

·         42 HOLLYWOOD-KOSSAR OG YFIRÞYRMANDI ÆSINGUR

o   Aníta Briem er rísandi stjarna í Hollywood sem segir þrjóskuna hafa komið sér þangað sem hún er í dag, þar sem hún getur valið úr hlutverkum og spókað sig á rauða dreglinum uppáklædd af stjörnustílista. Hún ræðir hve gaman það sé að fá að kyssa sæta stráka fyrir framan myndavélarnar og njóta þess besta úr báðum heimum, ástina á leikstjóranum og muninn á íslenskum og bandarískum karlmönnum.

 

VETTVANGUR

·         Hjálpum þeim 

o   „Búum til betri heim - Sameinumst hjálpum þeim - Sem minna mega sín - Þau eru systkin mín - Vinnum að frið á jörð - Lífsréttinn stöndum vörð - Öll sem eitt“

o   Gleymdu ekki þínum minnsta bróður. Þú getur lagt þitt af mörkum, heima og að heiman.

·         Heimilislausar í vetrarhörku

o   Lena Viderø heimsótti Konukot og kynntist lífinu í Kotinu, konunum sem þar gistu, sjálfboðaliðum og starfsmönnum. Hún fékk til dæmis að heyra sögu þrjátíu og fjögurra ára gamallar, þriggja barna móður sem byrjaði ekki að drekka fyrr en tuttugu og sjö ára gömul. Hún reynir nú að halda sér edrú en segir löngunina í fíkniefni stundum svo sterka að hún vilji helst fara inn á næsta klósett að sprauta sig.

·         Ekki trúa öllu sem þú heyrir

o   Hélstu að feitur matur, pillan eða svitalyktareyðir gætu valdið brjóstakrabbameini? Það er misskilningur byggður á flökkusögum. Við birtum flökkusögur og svör við þeim af heimasíðunni brjostakrabbi.is. 

 

·         TAKTU VEL Á MÓTI VETRI  

o   Tískuþáttur eftir Veru Pálsdóttur.

 

FEGURÐ

·         Fjólubláir draumar

o   Ekki vera smeyk við að skarta fjólublárri augnumgjörð í vetur. Við leiðum þig í allan sannleikann um hvernig fara á að því.

·         Fullkominn farði

o   Farði er mikilvægur til þess að verja húðina fyrir kulda og mengun á veturna. Við tókum saman hagnýtar upplýsingar um bestu farðana og góð ráð fyrir þig og þína húð.

·         Gerðu þig klára á korteri

o   Ertu í tímaþröng? Er karlinn kannski orðinn þreyttur á því að þurfa alltaf að bíða eftir þér ef þið ætlið að gera eitthvað? Það þarf ekki að taka svo langan tíma að hafa sig til.

 

HANN / HÚN

·         Leiðin að hjarta okkar liggur í gegnum „egó-ið“!!!

o   Smjaðrið fyrir okkur, segið okkur að við séum sterkir, fallegir og duglegir. Við erum svo einfaldir að það svínvirkar. Davíð Guðbrandsson leikari ljóstrar upp tíu atriðum sem konur vissu ekki um karla. 

·         Láttu drauminn rætast

o   Lykillinn að árangri felst í því að biðja um hjálp. Ríka og fræga fólkið notar lífsþjálfara til þess að hjálpa sér. Þú þarft þess ekki. Þú getur náð sama árangri með því að fá fólkið í kringum þig til þess að benda þér á kosti þína og galla og hjálpa þér að vinna með þá.

·         Daðraðu og hafðu gaman af  

o   Ekki vanmeta listina að daðra við barinn, sú kunnátta að geta dregið til sín mann getur skipt sköpum hvort sem þú ert í leit að skammtímaævintýri eða langtímasambandi. Þá er líka gott að geta lesið í viðbrögðin til að koma í veg fyrir vandræðalegar uppákomur og óþarfa höfnun.

·         Tíu verstu pikköpplínur allra tíma

o   Sumir karlmenn virðast telja það sér til framdráttar að sýna ruddaskap við konur, sérstaklega þegar þeir eru að opna á samræður. Slíkt gerist þó aðallega þegar áfengi er haft um hönd. Við tókum saman tíu verstu pikköpplínur sem íslenskar konur hafa fengið að heyra á djamminu. 

·         Játningar piparsveinsins

o   Piparsveinninn okkar, Guðmundur Jóhannsson, gekk út. Því ætlar góðvinur hans og meðleigjandi að taka við keflinu. Jóhann Jökull Ásmundsson hefur allt til brunns að bera til að geta verið eftirsóttur piparsveinn sem býr í miðbænum, enda kann hann ýmislegt fyrir sér þegar kemur að samskiptum kynjanna. Hann deilir því nú með okkur hvernig hægt er að skemmta sér vel, en gera það rétt. Komdu vel fyrir í næsta samkvæmi.

·         Stjörnuspá

o   Steingeitin upplifir aukið sjálfstraust og bjartsýni. Hún er örugg með sig og finnur til öryggis varandi framtíðina. Bogmaðurinn gæti þurft að færa fórnir sem hafa í för með sér breytingar á framtíðarplönunum. Og Vogin þarf að fara í gegnum fjármálin eftir að hafa eytt um efni fram.

·         Skóli lífsins

o   Elín Hirst hefur kappkostað árum saman að gegna hárri og eftirsóttri stöðu, eiga fínan bíl, dýran fatnað,  fara reglulega í utanlandsferðir, eiga stofustáss eftir fræga hönnuði, listaverk og helst Rolex-úr til setja punktinn yfir i-ið. En er hún ánægð og sæl?  Nei, ekkert sérstaklega.       

 

 

 

 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.