Útgáfa

ge0815

KÖKUBLAÐ Gestgjafans!

14.11.2008

Nú fer að líða að jólum og þá er kominn tími á Kökublað Gestgjafans. Súkkulaðikökur og eftirréttir eru freistingar til að falla fyrir ásamt gömlu góðu tertunum og smákökunum. Uppáhaldskakan, “djúsí” rúllutertur, pönnukökutertur og brauðbakstur eru meðal gómsætra uppskrifta nýjasta tölublaði Gestgjafans.. Allt þetta og meira til í ljúffengu Kökublaði Gestgjafans!

Uppáhaldskakan // Við leituðum til nokkurra sælkera og fengum uppskriftir að uppáhaldskökunum þeirra.

Súkkulaði ... fyrir nautnaseggi og nammigrísi // Sirrý er mikill súkkulaðiunnandi og fannst ekki leiðinlegt að gera þennan freistandi og fallega súkkulaðiþátt.

Gómsætt án sykurs // Hanna bakaði m.a. bananabrauð og appelsínu- og engiferkex.

Gömlu góðu ... // Hver man ekki eftir ilmandi kökulykt úr eldhúsi mömmu eða ömmu? Sirrý rifjar upp gamlar og góðar uppskriftir að tertum og smákökum og hvetur okkur til að halda í gamlar hefðir.

Frosnar og fljótlegar í veisluna // Það er ekki ónýtt að eiga köku tilbúna í frystinum þegar óvænta gesti ber að garði. Sirrý lagaði nokkrar flottar kökur í frystinn.

Brauðfæðum heimilið // Heimabökuð brauð eru æðisleg og um leið og maður fyllir heimilið óviðjafnanlegum ilmi er hægt að spara töluverðar upphæðir við matarinnkaupin.

Með rúllur í eldhúsinu // Sumar freistingar eru til að falla fyrir og þessar rúllutertur sem Sirrý bakaði eru það svo sannarlegar!

Pottþéttar pönnukökutertur // Úlli getur ýmislegt fleira en að elda úr villibráð. Hann bakaði vænan stafla af pönnsum og bjó til nokkrar ólíkar pönnukökutertur.

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ

 

 

 

 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.