Útgáfa
Blómstrar í kreppunni
Bjarni Ármannsson (40) á íslensku sveitaballi í Noregi
Bjarni Ármannsson skellti sér á íslenskt sveitaball í Osló á dögunum ásamt eiginkonu sinni. Hann hélt sig til hlés og staldraði stutt. Honum var tekið af kurteisi en sýndur lítill áhugi.
Rósa Ingólfsdóttir (61) yfirgefur Laufásveginn:
RÓSA OG HÚSIÐ: Hvíta húsið hennar Rósu Ingólfs við Laufásveginn er hrein bæjarprýði. Það sama má segja um hana sjálfa sem veitt hefur birtu og yl inn á íslensk heimili um áratugaskeið vegna hreinskilni sinnar og hins eðlislæga þokka.
Fyrirsætan og fegurðardísin Ósk Norðfjörð (30) á nýjum slóðum:
Ósk hefur verið farsæl fyrirsæta um árabil, enda ein glæsilegasta kona landsins. Þessi fjögurra barna móðir nýtur nú lífsins í faðmi fjölskyldunnar þar sem hún dundar sér við að skrifa barnabók ásamt syni sínum, Brynjari.
Sjónvarpsstjarnan Helgi Seljan (29) veikur í þrjár vikur:
Augnsýkingin varð þess valdandi að Helgi varð svo gott sem blindur og mjög ljósfælinn. Og þoldi alls ekki birtuna sem fylgir Kastljósinu.
Eddan
Edduhátíðin fór fram með pomp og prakt í Háskólabíói þar sem kvikmyndagerðarfólk Íslands skellti sér í betri gallann og fagnaði íslenskri framleiðslu. Rithöfundurinn Gerður Kristný lét ekki færðina stoppa sig og stakk spariskónum ofan í veskið.
Glæsilegar eiginkonur milljarðamæringanna sitja ekki auðum höndum:
Á bak við hvert mikilmenni stendur kona. Engin undantekning er með íslensku útrásarvíkingana. Eiginkonur millanna eru hver annarri glæsilegri og fengu ýmis góðgerðarsamtök að njóta örlætis þeirra. Nú styðja þær eiginmenn sína á niðurtúrnum og ný og breytt framtíð blasir við.
Jónsi ekki hommi og ekki skilinn!
Hamingja! Jónsi í Svörtum fötum hefur þurft að þola alls kyns orðróm um langt skeið en segist ekki láta það á sig fá. Hjónabandið blómstri sem aldrei fyrr. „Ég er ekki að skilja, er ekki hommi og á ekki von á barni, “ segir Jónsi og hlær og segist enn þá vera jafnástfanginn af konunni sinni og þegar hann var unglingur

