Útgáfa

so0811

Frægasta stríð bókmenntanna

20.11.2008

Trójustríðið
Guðdómlegir kappar og ansi mannlegir guðir áttust við í Trójustríðinu. En átti þetta fræga stríð sér stað í raun og veru? Sagan öll rannsakar málið.

Sturlungaöld
Vatnsfirðingar fremja níðingsverk að Sauðafelli í Dölum. Snorri Sturluson skákar börnum sínum vestra. Þriðja greinin í flokki Ragnheiðar Gyðu um Sturlungaöldina á Íslandi.

Ástir og afbrot
Ræningjahjúin Bonnie Parker og Clyde Barrow voru frægustu glæpamenn Bandaríkjanna í byrjun 4. áratugarins, allt þar til að byssukúlur lögreglunnar settu endapunktinn á feril þeirra.

Miðja heimsins til forna
Torgið Forum Romanum var miðja hins gríðarvolduga Rómaveldis. Hér er rakin samtvinnuð saga Júlíusar Sesars og torgsins þar sem hann komst til metorða.

Glæsilegur ferðamáti fína fólksins
Stjörnufans, glamúr og ævintýri – fáar járnbrautarlestar eru jafnfrægar og umtalaðar og Austurlandahraðlestin. Lesið um lestina sem varð kveikjan að fjölmörgum bókum og kvikmyndum.

Nasistalæknirinn í Auschwitz
Í seinni heimsstyrjöldinni framkvæmdi læknirinn Josef Mengele grimmilegar tilraunir á fólki í fangabúðunum í Auschwitz. Þetta framferði gerði hann að einum hataðasta manni 20. aldarinnar.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.