Útgáfa

hh0816

160 jólagjafahugmyndir

28.11.2008

160 jólagjafir // Hús og híbýli léttir þér jólaundirbúninginn, en ekki hvað? Við fórum í búðir út um allan bæ og tíndum til 160 „skotheldar“ jólagjafir. Íslensk hönnun er að sjálfsögðu áberandi, enda talin verða jólagjöfin í ár.

Jóladraumur á sveitasetri // Við kíktum á hlýlegt heilsárshús sem búið var að klæða í jólabúninginn. Samt ekki þennan rauða hó, hó, hó-jólabúning, heldur náttúrulegan sveitasjarmajólabúning.

Flottir aðventukransar // Hjá fjórum blómabúðum í bænum fengum við sýnishorn af flottum aðventukrönsum, eins og menn á þeim bæjum vilja hafa þá; Dans á rósum, Blómaverkstæði Binna, Breiðholtsblóm og Garðheimar.

Það snarkar í arineldinum // Anna María Gunnarsdóttir og Friðrik G. Friðriksson eiga einstaklega fallegt hús á Seltjarnarnesi. Jólin eiga sérstakan stað í hjörtum allra í fjölskyldunni.

Jólakúlur // Vantar þig nýjar kúlur á tréð? Auðvitað, það er alltaf hægt að gera gott betra. Hér er sýnishorn af úrvalinu.

Flottustu jólapakkarnir // Við fengum nokkra snillinga úr ýmsum áttum til að koma með tillögu að flottum og sniðugum pökkum fyrir jólin.

Jólaævintýri Birnu // Jólin eiga hug og hjarta Birnu Jóhannsdóttur, húsfreyju í Grafarvogi. Hún er hluti af skemmtilegum föndurklúbbi sem kemur reglulega saman.

Nú verður spilað ... // Við kíktum í tvær aðalspilabúðir landsins og völdum spil af ýmsum gerðum fyrir spilavertíðina fram undan; ný, klassísk, óhefðbundin og partíspil.

Hús með sál // Anna Kristín Hjartardóttir arkitekt býr með manni sínum, Stefáni Kjartani Ríkharðssyni smið, í sjarmerandi húsi eftir Aðalstein Richter, arkitekt í Vogahverfi.

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.