Útgáfa

ml0812

Höfum misst sjálfstæðið

4.12.2008

Nýtt tölublað af Mannlífi er komið í verslanir! Fjallað er um Hæstarétt sem styttir dóma sakamanna, sögu Sæma rokk og Morgunblaðið sem riðar til falls. Þá skoðum við kröfu fjandvina okkar á Englandi, hvers vegna þetta fór svona og hvaða leið er út úr vandanum.

Styttir dóma Hæstaréttar // Fangelsismálastjóri styttir refsingu flestra afbrotamanna. Til þess hefur hann heimild í lögum. Geri ekki breytingar, segir dómsmálaráðherrann.

Sæmi rokk á bók // Ingólfur Margeirsson hefur skráð sögu Sæma rokk, Sæmundar Pálssonar.

Risinn riðar til falls // Morgunblaðið var stórveldi og hafði mikil ítök og mikinn lestur. Mikill fjöldi lesenda hefur yfirgefið blaðið.

Tómatarækt í Friðheimum // Knútur Ármann í Friðheimum er bóndi sem hefur sérhæft sig í tómatarækt. Hann ber sig vel, segir neytendur kaupa allt sem framleitt er. Undir það tekur framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkjumanna. Sem aldrei fyrr skipti nú íslensk framleiðsla miklu máli.

Skilið peningunum // Það var krafa fjandvina okkar á Englandi. En hvert var hlutskipti Íslendinga sem eru í Englandi í miðri milliríkjadeilu? Sóknarpresturinn varð sér úti um fisk sem hann gaf svöngum Íslendingum.

Eyrir // Hvers vegna fór þetta svona og hvaða leið er út úr vandanum?

Jón Daníelsson og Davíð Oddsson hafa ekki sömu skoðanir á því hvað olli vandanum. Ekki ég, segir Davíð. Jón segir Davíð bera mikla ábyrgð.

Vandi flugfélaga // Hafi rekstur flugfélaga nokkru sinni verið erfiður er það leikur einn miðað við það ástand sem nú er.

Myndlist // Freyja Dana er að opna sýningu og Hlynur Hallsson er með sérstaka sýningu í Listasafni Reykjavíkur og víðar.

Bækur // Stefán Máni, Guðrún Eva og Arnaldur hafa öll sent frá sér bækur. Þórarinn Þórarinsson hefur lesið þær og segir sína skoðun.

Leiklist // Vestrið og Hart í bak eru á fjölunum. Jón Viðar Jónsson fór í leikhúsin.

Rithöfundar // Bryndís Schram og Finnbogi Hermannsson segja frá bókum sínum.

Að missa vinnuna // Hvernig er best að bregðast við?

Prumpulykt í Portsmouth // Kona fer á völlinn. Hefur engan áhuga á fótbolta og veit ekki einu sinni hvað óbein aukaspyrna er.

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.