Útgáfa
Dagbók frá Diafani
Lipur stílsnilld Jökuls Jakobssonar, hlýlegur húmor hans og djúp samlíðan með mannfólkinu naut sín hvergi betur en í bók sem hefur verið ófáanleg í áratugi.
Haustið 1966 héldu hjónin Jökull Jakobsson og Jóhanna Kristjónsdóttir til Grikklands ásamt þremur ungum börnum sínum. Þau enduðu í þorpinu Diafani á eyjunni Karpaþos. Frumstæðasta þorpinu á afskekktustu eyjunni.
Einstakt mannlíf er í forgrunni þessarar fallegu og bráðskemmtilegur bókar.
- Konurnar sem vinna hljóðar verkin meðan karlarnir sitja á kaffihúsunum og rífast um lýðræðið og kónginn.
- Rakarinn sem hafði farið til Ameríku en er kominn aftur heim til að deyja.
- Framkvæmdamaðurinn sem byggir ótrauður hótel þótt engir séu túristar.
- Stúlkan sem á ekki fegurri minningu en að hafa verið svikin í ástum.
Þetta er ótvírætt eitt allra besta verk Jökuls.
Bókin er gefin út í tilefni af 75 ára afmæli Jökuls þann 14. september 2008.
Jökull lést langt fyrir aldur fram árið 1978, aðeins 44 ára gamall. Hann skaust upp á stjörnuhimininn í íslensku leikhúsi með verkinu Hart í bak sem frumsýnt var 1963. Verkið öðlaðist meiri vinsældir en nokkurt íslenskt leikrit hafði gert fram að því. Þjóðleikhúsið hefur verkið nú til sýninga með Gunnar Eyjólfsson í aðalhlutverkinu.
Auk þess að endurnýja íslenska leikritun var Jökull mikilvirkur blaða- og útvarpsmaður. Dagbók frá Diafani var ekki eina ferðabók hans frá afskekktum eyjum því ásamt listmálaranum Baltasar skrifaði hann bækurnar Síðasta skip suður frá Breiðafjarðareyjum og Suðaustan fjórtán frá Vestmannaeyjum.
Höfundur: Jökull Jakobsson
ISBN: 978-9979-9810-9-1
Útgáfa: Desember 2008
Verð: 4.290 krónur

