Útgáfa

nl0815

Kona ársins 2008!

12.12.2008

Kona ársins
Hún hefur brúað bil á milli Íslands og Miðausturlanda. Hún hefur látið sig varða lágt menntunarstig í Jemen og fyrir hennar tilverknað eru nú 132 jemensk börn styrkt til náms af Íslendingum. Í haust stóð hún fyrir glæsimarkaði í Perlunni þar sem safnað var fyrir nýju skólahúsi í Sanaa í Jemen.

HEITT

Sokkar sem þú manst eftir
Ú la la! Sokkar eru ekki bara sokkar, ef þú hélst það. Sokkar eru svo miklu meira – þeir eru leiktæki til daðurs og stílbrota.

Flott föt í kreppu
Hugsaðu út fyrir rammann og skoðaðu hvað verslanir Rauða krossins hafa upp á að bjóða.

Sparifylgihlutir
Það er fátt mikilvægara en flottir fylgihlutir til að kóróna jóla- og áramótafatnaðinn.

Í desember
Settu bros á andlitið og skelltu þér í leikhús með börnin eða á hátíðlega jólatónleika. Það úir og grúir af allskyns skemmtilegum hlutum til að gera fyrir og um jólin. Við birtum hér brot af því besta sem er að gerast í menningarlífi Íslendinga um jólin.

Oddaflug
Nýtt Líf valdi fleiri konur, auk Jóhönnu, sem skarað hafa fram úr á árinu sem er að líða. Kraftmiklar konur sem hafa látið að sér kveða og við getum öll verið stolt af. Margar hafa látið gott af sér leiða í þágu annarra og aðrar hafa náð langt á sínu sviði.

Forsíðuviðtal
Í lok júní á síðasta ári barst Öldu Lóu Leifsdóttur og Gunnari Smára Egilssyni óvæntur tölvupóstur frá Afríku. Innihald hans átti eftir að breyta lífi þeirra til frambúðar, búið var að finna lítið stúlkubarn, um tveggja mánaða gamalt, sem þau gætu ættleitt. Litla stúlkan var munaðarlaus en henni hafði verið hent fram af brú og út í á, þar sem hún lenti í sefi. Sefið bjargaði henni frá drukknun en tveimur tíu til tólf ára strákum tókst að veiða hana upp úr ánni, þar sem þeir stóðu undir brúnni við veiðar þegar þetta gerðist. Mánuði síðar voru Alda Lóa og Gunnar Smári komin til Tógó þar sem þau voru í hálft ár á meðan ættleiðingin gekk í gegn hér heima. Þann 22. desember komust þau svo loksins heim með lítið jólabarn.

Karlar vs. konur
Hlutur kvenna í stöðum æðstu stjórnenda hjá tveimur af ríkisbönkunum, Nýja Landsbankanum og Nýja Kaupþingi, er innan við fjórðungur. Þrátt fyrir að hlutur kvenna sé ekki hærri en þetta hefur hlutur þeirra í bönkunum lagast talsvert frá því fyrir bankahrunið. Nýi Glitnir stendur best er varðar kynjahlutfall æðstu stjórnenda en þar er hlutur kvenna ríflega 36 prósent. Kona sem starfaði í banka uppgötvaði að hún var með helmingi lægri laun en starfsbróðir hennar.

Breytt jól
Jólin eru á næsta leiti og líklega í breyttri mynd á mörgum heimilum frá þeim síðustu. Fólk hefur talað saman og ákveðið að nú skuli jólagjafir vera með öðru sniði en áður. Þrátt fyrir samdrátt í fjárútgjöldum í jólagjafalið heimilisbókhaldsins virðist vera lítill söknuður hjá flestum og sumum virðist hreinlega létt að geta undið ofan af venjum um dýrar jólagjafir sem hafa tekið í budduna.

Eins og fatafella í jólaboði
Piparsveinninn okkar, Jóhann Jökull Ásmundsson, segir jólaboð ekki hönnuð fyrir einhleypa og barnlausa einstaklinga. Hann upplýsir okkur um hvernig njóta megi jólanna þótt einhleypur sé. Því það er munur á því að vera einn og að vera einmana.

Stjörnuspá
Upp kemst um leyndarmál hjá Fiskunum en smáatriðin skipta Krabbann mestu máli í desember. Hjá Vatnsberanum er desember hins vegar blómlegur tími til þess að huga að nýjum verkefnum og markmiðum fyrir framtíðina.

Skóli lífsins
Thelma Ásdísardóttir hefur lært að flestir leita skjóls í einhvers konar kössum. Kærleikurinn er það sem koma skal allra fyrst en það sem einna mestu máli skiptir er að hún hefur frjálst val um sitt eigið líf.

  • Lestu
  • Hlustaðu
  • Innlit
  • Dýrindismatur
  • Fann botnlanga í ruslafötu
  • Jólin hér og þar
  • Tíska
  • Tíu atriði sem karlar vissu ekki um konur
  • Fegurð
  • Hátíðarförðun
  • Kósí jól
  • Láttu þér líða vel


Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.