Útgáfa
Páll postuli og ofsóttir fylgismenn Jesúa
Sál frá Tarsus ofsótti söfnuð hinna frumkristnu af algjörri hörku. Hann taldi fylgismenn Jesúa verðskulda dauða. En svo varð Sál fyrir vitrun og gerðist fremstur í flokki hinna kristnu undir nafninu Páll. Margir telja að óþreytandi trúboðsstarf hans eigi jafnvel meiri þátt í að kristnin varð alheimstrú en sjálf kenning Jesúa frá Nasaret
HINIR GUÐLEGU FARAÓAR
Þeir voru taldir guðlegar verur og til þess að búa þeim sómasamlegt líf eftir dauðann strituðu tugþúsundir manna árum saman við að byggja þeim píramída. En þeir lifðu líka í vellystingum praktuglega.
MORÐ Í LUNDÚNAÞOKUNNI
Jack the Ripper, eða Kobbi kviðrista, drap fjölda vændiskvenna í London 1888. En hver var hann eiginlega?
PÁLL POSTULI
Hann ofsótti kristna menn framan af en sneri svo alveg við blaðinu og gerðist mesti máttarstólpi hinnar nýju trúar.
LOFTBÓLUDÝRÐ
Winston Churchill, Marilyn Monroe og Marie-Antoinette voru meðal þeirra sem dýrkuðu kampavín. Við segjum frá upphafi þessa drykkjar.
ÖRLYGSSTAÐABARDAGI Á STURLUNGAÖLD
Í fjórðu grein sinni um Sturlungaöld skrifar Ragnheiður Gyða Jónsdóttir um Örlygsstaðabardaga þar sem Kolbeinn ungi og Gissur Þorvaldsson börðust við feðgana Sighvat og Sturlu.
SÍÐASTA SÓKN HITLERS
Í desember 1944 gerðu hersveitir Hitlers stórsókn í Ardennafjöllum gegn áhlaupi Breta og Bandaríkjamanna. Sóknin byrjaði vel en reyndist vera fjörbrot Þriðja ríkisins.
EFNI ÞESSA HEFTIS
Hvað gerðist í desember? / Albúmið – svipmyndir úr sögunni / Spurningar og svör / Faraóar Egiftalands / Páll postuli / Örlygsstaðabardagi / grein um Sturlungaöld. / Sóknin í Ardennafjöllum / Kampavín / Kobbi kviðrista / Grafið úr gleymsku / Sögulegt smælki / Sögugetraunin og Hver er maðurinn? / Hvað verður í næsta hefti?

