Útgáfa
Íslensk heimili
Trendin 2009
Heimtextil International Trend Table hittist árlega og sker úr um hvert stefnur tískuheimsins eru að leiða okkur mannfólkið. Í dómnefndinni situr fólk hvaðanæva úr heiminum sem er háttsett í hönnunarbransanum
Topp tíu 2008
Paul Goldberger skrifar þekktan dálk um arkitektúr í vikuritið New Yorker. Hann valdi á dögunum það besta í arkitektúr árið 2008 og mörgum að óvörum valdi hann fossa Ólafs Elíassonar sem eitt af því sem stóð upp úr á þessu góðærisári.
Ljós af öllum stærðum og gerðum
Við kíktum í ljósabúðir bæjarins og skoðuðum fjöldann allan af flottum ljósum.
Thorsten Henn og Lovísa Lóa
Thorsten Henn ljósmyndari og Lovísa Lóa Sigurðardóttir myndlistarkona búa ásamt þriggja ára gömlum syni í gömlu og sjarmerandi húsi í Þingholtunum.
Litríkt og skemmtilegt
Pan Thorarensen tónlistarmaður og Guðrún Kristjánsdóttir fatahönnuður búa í Vesturbænum. Á heimili þeirra úir og grúir af skemmtilegum munum og fer ekki á milli mála að þar er smekkfólk á ferð.
Nægjusami listamaðurinn
Myndlistarmaðurinn Kolbrá Bragadóttir bauð okkur í heimsókn á heimili sitt og vinnustofu. Hún býr í Stigahlíð ásamt börnum sínum, Braga, Frigg og Aski.
Tekið í gegn
Bólstrarinn Sighvatur Kristjánsson á Langholtsvegi 68 leyfði ljósmyndara Húsa og híbýla að vera fluga á vegg þegar hann gerði upp eitt Egg eftir Arne Jacobsen.
Nýstárleg hönnun í Brasilíu
Arkitektarnir á stofunni Triptyque í Sao Paulo í Brasilíu hika ekki við að setja spurningarmerki við það sem almennt er talið ráðandi á markaðnum og skapa sér sinn eigin stíl.
EINNIG
HITT + ÞETTA // SPURT OG SVARAÐ // FLOTT & FUNDIÐ // 10 HLUTIR // GÓÐ HUGMYND // NÝJAR BÚÐIR // ÁSKRIFENDATILBOÐ // HÖNNUNARSAGAN // UPPÁHALDSHÚSIÐ

