Útgáfa

nl0901

Vandræðaleg yfir kynþokkanum

29.1.2009

Tímaritið er sneisafullt af skemmtilegu efni og má þar helst nefna viðtöl við Ingu Lind Karlsdóttur og Svölu Björgvins. Eldhugar Íslands eru valdir sem og best klædda fólk landsins. Að auki er ítarleg stjörnuspá fyrir árið 2009.

Ríkasta kona í heimi // Lesendur kynnast Ingu Lind Karlsdóttur sem segir að lífið væri ansi erfitt ef allir hugsuðu jafnilla til hennar og hún gerir sjálf. Hún er þó mjög ánægð með líf sitt og upplifir sig sem ríkustu konu í heimi. Hún reynir að velta sér ekki upp úr leiðindum, veikindum eða áföllum heldur reynir að gera það besta úr hlutunum.

Eldhugar Íslands // Nýtt Líf valdi eldhuga síðastliðins árs og fékk þá til að stilla sér upp fyrir framan linsuna. Þetta fólk hefur verið áberandi og skarað fram úr hvert á sínu sviði.

Svala Björgvins // Svala ræðir hér um slysið á Reykjanesbrautinni, lífið og ástina. Auk þess um hjálpina að handan og stuðning fjölskyldunnar.

Stjörnuspá ársins // Hvað ber nýhafið ár í skauti sér? Hvernig er stjörnuspáin þín fyrir árið 2009?

Best klæddu konurnar  og mennirnir // Nýtt líf velur best klædda fólk landsins.

Ásamt þessu er meðal annars fjallað um vetrarlífið, treflana, tískumolana, menninguna, lesturinn og einfalda holla rétti. Þá sýnir Nýtt Líf hvernig hægt er að blása nýju lífi í fataskápinn, ljóstrar upp leyndardómum japanskra kvenna.  Kíkt er í heimsókn til Sigtryggs Baldurssonar sem getur grátið yfir auglýsingum og er í hjarta sínu riddari. Við skoðum streituna og hver merki hennar eru og sendum makana í ástandsskoðun.

Allt þetta og svo margt fleira finnur þú í nýjasta tölublaði Nýs Lífs!

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ!



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.