Útgáfa
SAGAN ÖLL & SKAKKI TURNINN
Fyrsta tölublađ af nýju sameinuđu tímariti lítur dagsins ljós í dag!
Tímaritin Sagan öll og SKAKKI TURNINN hafa veriđ sameinuđ í eitt tímarit - međ tveimur forsíđum (bak í bak). Ţví má segja ađ nú séu tvö tímarit á verđi eins!
Illugi Jökulsson hefur látiđ af ritstjórn tímaritsins og Ragnheiđur Gyđa Jónsdóttir tekiđ viđ. Ragnheiđur Gyđa hefur hingađ til setiđ í útgáfustjórn tímaritanna beggja. Illugi mun helga sig öđrum verkefnum fyrir Birtíng en situr ţó áfram í útgáfustjórn tímaritsins ásamt ţví ađ skrifa í hiđ nýja sameinađa tímarit.
Ađ ţessu sinni fjallar Sagan öll um orrustuna viđ Stalíngrad ţar sem draumar Hitlers drukknuđu í blóđi. Auk ţess eru í blađinu svipmyndir úr sögunni og fjallađ um gullgerđarmenn, stađreyndavillur í sögulegum kvikmyndum, orrustuskipiđ Vasa sem sökk í sć, hefnd Ţórđar kakala og Flóabardagann.
SKAKKI TURNINN veltir fyrir sér hvort Guđ sé í raun og veru til og ţverustu ţversögnum heimsins. Blađamađur SKAKKA TURNSINS skođar einnig Sahara. Ţá er fariđ yfir heimskulegustu dauđdaga ársins 2008, fjallađ um gođsagnakenndu drykkjurútana satýrana og múmía Leníns ţvegin hátt og lágt. Svörtu síđurnar fjalla um snyrtivörur úr mannshúđ, morđvélmenni og fleira álíka svart.
Sagan öll og SKAKKI TURNINN eru uppfull af fróđleik sem getur sannarlega létt fólki lífiđ í kreppunni og jafnvel gert ţví auđveldara ađ skilja veröldina sem viđ lifum í.
Frćđandi, kćtandi og ekki síst athyglisverđ tímarit fyrir alla fjölskylduna!

