Útgáfa

hh0902

Hundruð hugmynda fyrir heimilið!

5.2.2009

Skemmtileg og spennandi innlit, meðal annars kíkjum við á lögfræðing sem er með baðkar í eldhúsinu og á handlaginn ljósahönnuð. Þá tökum við skrifstofuna í gegn á ódýran og fljótan máta, skoðum flott gólfefni og veggfóður. Þú finnur hundruð sniðugra hugmynda fyrir heimilið í þessu nýja tölublaði af Húsum og híbýlum, tryggðu þér eintak!

Stuð á skrifstofunni
Skrifstofur eru jafnólíkar og þær eru margar. Við nefnum nokkur góð ráð fyrir skrifstofuna, kíkjum á fjölmenna og flotta skrifstofu í Héðinshúsi og einstaklingsskrifstofu í miðbænum.

Með baðkar í eldhúsinu
Í miðbæ Reykjavíkur á ungur lögfræðingur vel falinn gimstein – íbúð þar sem hátt er til lofts og útsýnið kynngimagnað. Þar mætist gamli og nýi tíminn í húsi sem er hátt í hundrað ára gamalt.

Handlaginn ljósahönnuður
Sérmenntaðir ljósahönnuðir eru ekki á hverju strái en við hittum einn slíkan í skammdeginu fyrir skömmu. Halldór Steinsen heitir hann og býr ásamt eiginkonu sinni, Þóru Brynjúlfsdóttur, í Mosfellsbæ.

Davíð Örn og vinnustofan
Davíð Örn Halldórsson er rísandi stjarna í íslenska myndlistarheiminum og lofa margir nýja sýningu hans. Við kíktum á yfirfulla vinnustofu Davíðs, sem honum finnst þó tómleg þessa dagana.

Litla Japan á Fjölnisvegi
Sigríður Maack arkitekt og Már Másson efnafræðingur búa í sjarmerandi húsi við Fjölnisveg. Áður bjuggu þau við þröngar aðstæður í Japan og segja umskiptin við flutningana hafa verið mikil.

:::  HITT + ÞETTA  :::  SPURT OG SVARAР :::  FLOTT & FUNDIР :::  GÓLFEFNI  ::: 
::: 
FRÆGIR STÓLAR  ::: 
OLE JENSEN HÖNNUÐUR  :::  10 HLUTIR  :::  VEGGFÓÐUR  ::: 
::: ÁSKRIFENDATILBOР :::  HÖNNUNARSAGAN ::: UPPÁHALDSHÚSIÐ :::

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ!



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.